Einstök frammistaða hjá nýliðanum í sögulegri sigurgöngu Sixers liðsins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. apríl 2018 16:00 Ben Simmons. Vísir/AP
Ben Simmons er að leika sitt fyrsta tímabil með Philadelphia 76ers og hann er heldur betur að standa undir væntingum. Simmons er að gera betur en það því kappinn er að bjóða upp á sögulega tölfræði í fjórtán leikja sigurgöngu Sixers liðsins. Philadelphia 76ers er á lengstu sigurgöngu félagsins í NBA-deildinni síðan liðið varð síðast NBA-meistari 1982-83. Í sigurleikjunum fjórtán þá er Ben Simmons að bjóða upp á 14,7 stig, 10,1 frákast og 10,9 stoðsendingar að meðaltali í leik.Ben Simmons has averaged 14.7 points, 10.1 rebounds, and 10.9 assists over the @sixers 14-game winning streak. No player prior to Simmons - rookie or vet - has ever averaged a triple-double over a winning streak of 10+ games in NBA history. pic.twitter.com/iOLtfzOLq7 — NBA.com/Stats (@nbastats) April 8, 2018 Eins og sést hér fyrir ofan þá hefur enginn leikmaður í sögu NBA-deildarinnar náð að verða með þrennu að meðaltali í svo langri sigurgöngu. Ben Simmons hefur með þessu hjálpað Philadelphia 76ers liðinu að komast upp fyrir Cleveland Cavaliers og í þriðja sætið í Austurdeildinni. Ben Simmons hefur alls verið með tólf þrennur á tímabilinu í NBA-deildinni og aðeins tveir leikmenn deildarinnar hafa náð fleirum eða þeir Russell Westbrook (24) og LeBron James (18). Ben Simmons þykir líklegastur til að vera kosinn besti nýliði tímabilsins en hann er með 16,0 stig, 8,1 frákast og 8,2 stoðsendingar að meðaltali í leik og hefur nýtt 54,7 prósent skota sinna.
NBA Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport „Takk fyrir ástina“ Fótbolti HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti Mætti seint á æfingu fyrir leik en svaraði með þrennu Fótbolti „Tímabilinu sem aldrei hófst er nú lokið“ Sport Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Körfubolti Hefja formlegar viðræður við Iraola Enski boltinn Fleiri fréttir Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Sjá meira