Stjörnuspá Siggu Kling – Sporðdrekinn: Miklar breytingar að bjóðast þér Stefán Árni Pálsson skrifar 6. apríl 2018 09:00
Elsku Sporðdrekinn minn, næstu tveir mánuðir eru afskaplega spennandi og þeir leggja línurnar fyrir því sem koma skal. Þú ert svo tengdur lífsorkunni, ert þar af leiðandi fljótur að reiðast en elskar að fyrirgefa. Þú ert svo mikill „mafíósi“ og verndar þá sem eru þér næstir eins og sannur bardagalistamaður svo hver sem fær athygli þína er mjög heppinn. Þér hefur fundist að það sem þú ert að gera hafi ekki borið svo mikinn ávöxt en þú verður mjög hissa, því sjáðu þú ert á svo miklu betri tíma en fyrir ári síðan, svo leyfðu þér að vera bara svolítið hugsunarlaus og hentu þér bara í djúpu laugina, því þegar þú þarft þá bjargast allt. Þú skalt hafa það alveg á hreinu að losa þig við leiðinlegt fólk sem rífur þig niður og setur fótinn fyrir þig þannig þú sérð ekki lífið í því ljósi sem þú ættir að gera; þú þarft að brjótast til frelsis því í því er lykillinn fólginn og ástin líka. Ég er ekki með hrein skilaboð til þín að þú eigir að skilja við maka þinn því þú ræður sjálfur hvernig þú túlkar þessi skilaboð sem eru send til þín núna. Það eru miklar breytingar að bjóðast þér, taktu við þeim fegins hendi og ekki vera hræddur því hræðslan er bara ímyndun og þú hefur ekkert að óttast. Þau vonbrigði sem þú ert að upplifa tengjast fortíðinni, en hún er búin svo skoðaðu frekar glasið sem hálf fullt en hálftómt. Taktu líka vel eftir því hvernig þú talar við sjálfan þig, því orðin þín og hugsanir eru að skapa framtíðina og um leið og þú skoðar betur hvernig þú setur kapp í sjálfan þig verða hindranirnar svo auðveldar. Þú elskar margbreytileika, svo leyfðu þeirri orku að vera meira í kringum þig og hentu þér út í hringiðu allsnægtanna og þú skalt vita að lífið þitt getur breyst á tíu mínútum, það þarf oft bara eina ákvörðun og kabúmm allt er breytt. Skilaboðin þín eru: Ég er óstöðvandiFrægir Sporðdrekar: Birkir Már Sævarsson landsliðsmaður, Dísa í World Class, Helga Braga Jónsdóttir leikkona, Björk Guðmundsdóttir söngkona, Scarlett Johansson leikkona, Whoopie Goldberg leikkona, Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir sjónvarpskona, Emmsjé Gauti rappari, Björk, Indira Ghandi, Karl bretaprins, Hillary Clinton, Leonardo DiCaprio, Magnús Scheving, Steingrímur Sævarr Ólafsson fjölmiðlaráðgjafi, Guðný Hrefna Sverrisdóttir, flugfreyja og gourmé kokkur, Hörður Ágústsson Macland snillingur. Indira Gandhi, Guðrún Ásmundsdóttir og Calvin Klein.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira Lífið Ástarbréf til íslenskra költmynda Tónlist Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Lífið Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Lífið Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Fleiri fréttir Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Sjá meira