„Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Agnar Már Másson skrifar 6. október 2026 22:01 Ambiku langaði alltaf að berja norðurljós augum og sá draumur rættist einmitt í gær. SOS/Silla Pálls Þegar hinni indversku Ambiku Sharma bárust sem barni bréf frá íslensku styrktarforeldri þar sem hún bjó í barnaþorpi á Indlandi varð hún heilluð af ljósmyndum af norðurljósum sem fylgdu bréfunum. Það setti því punktinn yfir i-ið eftir tveggja vikna Íslandsferðalag þegar hún fékk loksins að hitta bæði styrktarforeldrið sitt og sjá norðurljós á síðasta degi ferðarinnar.
Fjallað hefur verið um aðdraganda heimsóknarinnar hér á Vísi; hvernig SOS greip til þeirra örþrifaráða að leita til almennings að hjálp við að finna Hafdísi og hvernig ekkert varð úr fyrirhugaðri ferð þeirra Ambiku og eiginmanns hennar til Íslands í fyrra þar sem hjónin fengu ekki vegabréfsáritun. Í stuttu máli bárust SOS barnaþorpum skilaboð frá Ambiku á Facebook í fyrra þar sem hún leitaði að Hafdísi nokkurri, en sú var styrktarforeldri Ambiku er hún ólst upp í barnaþorpi í Greenfields á Indlandi. Ambika var einmitt að skipuleggja ferð til Íslands með eiginmanninum og vildi ólm komast í samband við styrktarforeldrið. En SOS greip í tómt þegar það leitaði að Hafdísi í kerfinu hjá sér og eftir tveggja mánaða leit gripu þau til þeirra ráða að biðla til almennings og fjölmiðlar gerðu sér mat úr þeirri tilkynningu. Degi síðar hafði frænka styrktarforeldrisins samband og þá kom í ljós að téð Hafdís héti Guðrún Hafdís. Sem fyrr segir varð ekkert úr Íslandsför þeirra hjóna í fyrra en þau komu loksins til landsins nú í september. Hans Steinar Bjarnason hjá SOS segir hjónin hafa farið í ferð um landið síðustu tvær vikur en að heimsóknin hafi endað með því þegar Ambika hitti loksins styrktarforeldri sitt í gær, í raun síðasta degi ferðalagsins þar sem þau héldu upp á flugvöll í dag. „Það var náttúrulega bara ótrúleg stund. Allt starfsfólkið stóð þarna alveg gjörsamlega frosið og það voru allir bara þurrkandi tárin úr augunum,“ segir hann. Bréf sem Ambiku bárust frá Hafdísi þegar hún var barn.Aðsend „Það bara táruðust bara allir og þetta var einhver magnaðasta stund sem ég hef orðið vitni að,“ heldur Hans áfram, sem segist sjálfur hafa verið hrærður eftir augnablikið enda hafi hann verið í samskiptum við hjónin vegna málsins í rúmlega ár núna. Hann rifjar þar sérstaklega upp ljósmynd skilaboða Ambiku í fyrravor en hún sýndi póstkort frá Hafdísi sem skreytt voru norðurljósum. „Það eru póstkort með myndum af norðurljósum sem verða til þess að hugmyndin kviknar hjá þeim að fara til Íslands í frí,“ rifjar Hans upp. Ambika var himinlifandi að fá að sjá norðurljósin undir lok ferðalagsins, að sögn Hans.Aðsend „Þannig að Amiku langaði alltaf til að sjá norðurljósin. Svo eru þau búin að vera hérna í tvær vikur og það er búið að vera rigning og ský allan tímann. Svo rennur upp dagurinn þar sem þau hitta Hafdísi og um kvöldið kemur hérna einhver svakalegasta norðurljósasýning sem við höfum séð lengi,“ segir hann en íbúar á suðvesturhorninu urðu vitni að norðurljósum í gær. Þetta er bara eins og í sögu. „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit.“
Hjálparstarf Indland Norðurljós Ferðaþjónusta Mest lesið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Hvað veistu um… pitsur? Lífið Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Hætta við að hætta við að hætta við Tónlist Hræðilegir dagar í Partylandi Lífið samstarf Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Menning Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Fleiri fréttir Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Sjá meira