Erdoğan flýtir kosningum og verður valdamesti maður frá dögum Atatúrks Gunnar Hrafn Jónsson skrifar 18. apríl 2018 15:21 Erdoğan hefur verið valdamesti maður landsins í fimmtán ár og er enn að bæta við sig völdum Vísir/EPA
Recep Tayyip Erdoğan, forseti Tyrklands, hefur ákveðið að flýta kosningum til þings og forseta um heilt ár og verður kosið 24. júní næstkomandi. Kosningarnar eru liður í umfangsmiklum breytingum á stjórnkerfi landsins sem er ætlað að færa enn meiri völd til forsetans. Erdoğan hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir einræðistilburði en hann var forsætisráðherra á árunum 2003 til 2014. Hann mátti ekki gefa kost á sér aftur þar sem hann hafði setið þrjú kjörtímabil en stjórnarflokkurinn AKP beitti sér þá fyrir stjórnarskrárbreytingum sem færðu völd til forsetaembættisins og Erdoğan sigraði forsetakosningarnar sama ár. Hann hefur síðan rekið og fangelsað fjölda herforingja, dómara, fræðimanna og blaðamanna sem hann taldi ógna völdum sínum. Í fyrra voru svo samþykktar stjórnarskrárbreytingar sem munu færa framkvæmdavaldið alfarið í hendur forsetans og verði Erdoğan sigurvegari kosninganna í júní, eins og búist er við, verður hann valdameiri en nokkur maður hefur verið í Tyrklandi frá dögum Atatúrks.
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Fleiri fréttir Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Sjá meira