Lögreglan hafði afskipti af nemanda sem hét því að „skjóta upp skólann sinn“ Birgir Olgeirsson skrifar 17. apríl 2018 14:38 Skólameistari Fjölbrautaskólans segir um strákapör að ræða og viðbrögð lögreglu hafi verið til fyrirmyndar.
Lögreglan hafði afskipti af nemenda við Fjölbrautaskólann í Ármúla í morgun eftir að hann hafði sett færslu á Facebook-síðu sína í gærkvöldi þar sem hann hét því að „skjóta upp skólann sinn“ ef hann fengi eitt „læk“ við færsluna.Greint var fyrst frá málinu á vef Morgunblaðsins en Ólafur H. Sigurjónsson, skólameistari Fjölbrautaskólans við Ármúla, segir í samtali við Vísi að lögreglan hafi mætt að eigin frumkvæði í skólann í morgun og rætt við drenginn.Ólafur H. Sigurjónsson skólameistari.Vísir/Anton Brink„Það kom hérna óeinkennisklæddur lögreglumaður og hafði samband við mig. Nemandinn var í skólanum og var hérna fyrir utan,“ segir Ólafur. Hann segir óeinkennisklædda lögreglumanninn hafa farið með drenginn út úr skólanum og þar mættu honum tveir einkennisklæddir lögreglumenn sem fóru með drenginn niður á lögreglustöð. Allt hafi það verið gert með frið og spekt. Ólafur segir bæði sig og lögreglu vera sammála að um strákapör væri að ræða. „En sjálfsagt að taka allt svona alvarlega,“ segir Ólafur. Hann segir lögreglumenn hafa gert drengnum grein fyrir alvarleika málsins. „Og viðbrögðin lögreglu mjög flott að mínu mati.“ Ólafur gerir ráð fyrir að rætt hafi verið foreldra drengsins þar sem hann er á átjánda aldursári. Samkvæmt vinnureglum verið haft samband við barnavernd vegna málsins. Hann segir drenginn ekki hafa orðið uppvís að einhverju misjöfnu áður í skólanum. „Þetta kom mér á óvart að það væri þessi drengur. Þetta var bara einhver fíflagangur en viðbrögð lögreglu fín.“ Hann segist ætla að ræða við drenginn á morgun en ekki liggur fyrir hvort honum verði vísað tímabundið úr skóla vegna málsins.
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Halla boðar til ríkisráðsfundar Innlent Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Innlent Fleiri fréttir Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Sjá meira