„Bóndinn frá Íslandi“ er sagður áhugaverðasti leikmaðurinn í nýliðavalinu Tómas Þór Þórðarson skrifar 17. apríl 2018 08:30 Tryggvi Snær Hlinason gæti spilað í NBA-deildinni næsta vetur. Vísir
Tryggvi Snær Hlinason, leikmaður Valencia í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta, gaf það út í gær að hann ætlar að gefa kost á sér í nýliðaval NBA-deildarinnar í sumar. Tryggvi hefur náð ótrúlega langt á skömmum tíma en aðeins eru fimm ár síðan að þessi rólegi risi úr Bárðardalnum byrjaði að æfa körfubolta. Hann sló í gegn með U20 ára landsliðinu á EM síðasta sumar og var svo í leikmannahóp A-landsliðsins á EM í Finnlandi í fyrra. Eftir aðeins eina leiktíð í Domino´s-deildinni var hann fenginn til Valencia sem er eitt besta lið Evrópu. Fjallað er um Tryggva á heimasíðu götublaðsins New York Post undir fyrirsögninni: „Bóndinn frá Íslandi er áhugaverðasti leikmaðurinn í nýliðavalinu.“ Þar er byrjað á því að segja að Tryggvi hafi stundum verið fastur heima hjá sér svo vikum skipti þar sem snjórinn var svo mikill og þykkur og í rauninni hafi hann ekkert annað þurft að fara. Sagt er að ellefu af 917 íbúum Þingeyjarsveitar hafi búið á bóndabænum hans Tryggva þar sem að hann ók um á traktor, sló grasið og rak kindur á fjöll. Nú er þesi tvítugi piltur að undirbúa sig fyrir lífið í NBA-deildinni. Tryggvi var frábær á EM U20 í fyrra þar sem að hann skoraði 16 stig og tók tólf fráköst að meðaltali í leik en íslenska liðið endaði í áttunda sæti A-deildarinnar. Ef Tryggvi stendur við það að gefa kost á sér en hættir ekki við er búist við því að hann verði valinn í annarri umferð og verði annar Íslendingurinn á eftir Pétri Guðmundssyni til að spila í NBA-deildinni.
NBA Tengdar fréttir Tryggvi Snær reynir að komast í NBA-deildina Bárðdælingurinn er sagður ætla að gefa kost á sér í nýliðavalið fyrir næsta tímabil. 16. apríl 2018 15:53 Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti „Takk fyrir ástina“ Fótbolti Mætti seint á æfingu fyrir leik en svaraði með þrennu Fótbolti Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Körfubolti Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Körfubolti Stóru liðin á eftir Kroupi Enski boltinn HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Sjá meira
Tryggvi Snær reynir að komast í NBA-deildina Bárðdælingurinn er sagður ætla að gefa kost á sér í nýliðavalið fyrir næsta tímabil. 16. apríl 2018 15:53