Dwayne Wade skólaði til krakkana í Philadelphiu | Myndbönd Tómas Þór Þórðarson skrifar 17. apríl 2018 07:00 Dwayne var í stuði. vísir/getty
Dwayne Wade sneri aftur klukkunni í nótt þegar að hann var í allt í öllu í glæsilegum útisigri Miami Heat gegn Philadelphia 76ers, 113-103, í einvígi liðanna í átta liða úrslitum austurdeildar NBA. Staðan í einvíginu er nú jöfn, 1-1, en fæstir bjuggust við því að Miami myndi gera eitthvað í rimmunni en Wade og félagar voru í nótt að rjúfa 17 leikja sigurgöngu Sixers-manna. Hinn 36 ára gamli Wade, sem þrívegis hefur orðið NBA-meistari, sýndi sparihliðarnar og skoraði 28 stig á 26 mínútum auk þess sem að hann tók sjö fráköst. Hann skoraði ekki þriggja stiga körfu í leiknum en hitti úr ellefu af 16 skotum sínum úr teignum. Sixers er enn þá án Joel Embiid en nú styttist í hann þannig að sigurinn í nótt var mikilvægur fyrir Heat-liðið. Ben Simmons var stigahæstur hemiamanna með 24 stig en Dario Saric skoraði 23 stig. Í vestrinu vann Golden State annan sigur á San Antonio Spurs og er yfir í rimmunni, 2-0. Það gæti vel farið svo að Spurs-liðinu verði hreinlega sópað í sumarfrí en lokatölur í nótt, 116-101. Kevin Durant var nánast óstöðvandi með 32 stig, sex fráköst og se stoðsendingar en Klay Thompson fór líka mikinn með 31 stig, þar af fimm þriggja stiga körfur. LaMarcus Aldridge skoraði 34 stig og tók tólf fráköst fyrir San Antonio Spurs.
NBA Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti „Takk fyrir ástina“ Fótbolti „Tímabilinu sem aldrei hófst er nú lokið“ Sport Mætti seint á æfingu fyrir leik en svaraði með þrennu Fótbolti Hefja formlegar viðræður við Iraola Enski boltinn Fleiri fréttir Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Sjá meira