Vörumerkið geti náð fótfestu um allan heim Kristinn Ingi Jónsson skrifar 11. apríl 2018 06:00 "Vörumerkið gæti svo vel náð til fleiri vöruflokka en aðeins sjávarafurða,“ segir Sara Lind Þrúðardóttir, framkvæmdastjóri Icelandic Trademark Holding. Vörumerkið var í gær afhent ríkinu til ævarandi eignar. Vísir/Sigtryggur
Sara Lind Þrúðardóttir, framkvæmdastjóri Icelandic Trademark Holding, félags sem heldur utan um rekstur vörumerkjanna „Icelandic“ og „Icelandic Seafood“, segir vel fara á því að íslenska þjóðin eignist vörumerki sem vísi eins sterkt í uppruna sinn og umrædd vörumerki gera. „Íslensk fyrirtæki munu þannig geta tengt sig við uppruna sinn og þar með styrkt efnahagslegar undirstöður samfélagsins til lengri tíma litið,“ segir hún í samtali við Markaðinn. Hún telur Icelandic-vörumerkið, sem var í gær afhent ríkinu til ævarandi eignar, vel geta náð fótfestu á fleiri mörkuðum. „Mér finnst þetta merki geta – í óumdeildu eignarhaldi – ferðast um allan heim. Það felast í því mikil sóknarfæri fyrir íslenska framleiðendur að nýta sér merkið til þess að sækja á erlenda markaði. Áhugi umheimsins á Íslandi hefur aukist gríðarlega á síðustu árum og eins gera neytendur sífellt meiri kröfur til rekjanleika matvara og eru tilbúnir að greiða hærra verð fyrir hágæðavörur. Tækifærin eru því sannarlega fyrir hendi.“ Icelandic Trademark Holding, sem hefur verið í eigu Framtakssjóðs Íslands, var stofnað til þess að halda utan um markaðssetningu vörumerkisins ásamt þjónustu við leyfishafa.Mikil tækifæri í útvíkun „Ég fékk það verkefni á mitt borð fyrir rúmum tveimur árum,“ segir Sara Lind, „að skoða möguleika vörumerkisins og hvernig hægt væri að auka virði þess enn frekar til framtíðar. Við fórum í mikla vinnu með erlendum og innlendum ráðgjöfum, ferðuðumst um heiminn, hittum þá sem hafa unnið með merkið og fleiri og leituðum meðal annars svara við því hvað vörumerkið stæði fyrir. Rauði þráðurinn í þeim svörum var að merkið stæði fyrir hreinleika, sjálfbærni, náttúru og gæði. Við ákváðum því að til framtíðar myndu aðeins hágæða íslenskar afurðir verða seldar undir vörumerki Icelandic.“ Sara Lind segir að hingað til hafi vörumerkið einkum verið notað fyrir sjávarafurðir. Vinna síðustu missera hafi hins vegar leitt í ljós að mikil tækifæri geti falist í því að útvíkka notkun merkisins þannig að það nái yfir fleiri íslenskar afurðir, til dæmis lýsi, skyr, ost og aðrar landbúnaðarafurðir, svo aðeins nokkur dæmi séu nefnd. „Vörumerkið gæti svo vel náð til fleiri vöruflokka en aðeins sjávarafurða,“ segir hún. Sara Lind bendir á að margir íslenskir framleiðendur sinni framleiðslu sinni af kostgæfni og séu færir í sínu fagi en það sé þeim hins vegar kostnaðarsamt að þróa sjálfir vörumerki og búa til markaðsefni og auglýsingar fyrir vörurnar sínar.„Þar komum við til sögunnar. Við getum hjálpað framleiðendum við að kynna og markaðssetja vörur sínar undir vörumerki Icelandic á erlendum mörkuðum. Í stað þess að framleiðendur séu hver í sínu horni getum við byggt Icelandic upp sem eins konar vettvang fyrir þá, þar sem þeir fá stuðning til þess að koma afurðum sínum á framfæri á mörkuðum erlendis. Það er stóra hugmyndin. Svo er að vinna áfram með hana með nýjum eiganda.“ Félagið standi vörð um vörumerkið á þeim mörkuðum þar sem það er skráð. Inn í samstarfið geti þannig komið nýir framleiðendur og nýtt sér að selja vörur sínar undir vörumerkinu, auk þess að hafa aðgang að markaðs- og kynningarefni, mörkuðum og þjónustu af hálfu Icelandic Trademark Holding. Allt þetta lúti að því að auka hróður og verðmæti íslenskra afurða.Samstarfið við Highliner eflt Icelandic Trademark Holding er með nytjaleyfissamninga við Solo Seafood, eiganda Ibérica á Spáni, sem selur íslenskar sjávarafurðir undir vörumerkjum Icelandic í suðurhluta Evrópu, og Highliner Foods, stærsta sjávarútvegsfyrirtæki í Norður-Ameríku, sem er leyfishafi vörumerkingar fyrir frosnar sjávarafurðir. Samningurinn við síðarnefnda fyrirtækið rennur út á þessu ári. „Stjórnendur Highliner Foods hafa mikinn áhuga á því að endurnýja samninginn við okkur og efla samstarfið til framtíðar, til dæmis með því að þróa nýjar vörur undir vörumerkinu og setja aukinn kraft í markaðs- og sölustarf. Í því geta falist mikil tækifæri fyrir íslenska framleiðendur.“ Sara Lind segir að viðræðurnar um endurnýjun samningsins séu á lokametrunum. Hún tekur fram að samkvæmt nýjum samningi verði einungis seldar vörur af íslenskum uppruna undir vörumerkinu.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Merki Icelandic gefið til ríkisins Framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands segir sjóðinn ekki aðeins hafa skilað góðri ávöxtun, heldur einnig stöndugum félögum. Eiginlegri starfsemi er lokið. Ávöxtun sjóðsins nemur um 110 prósentum. Lagt verður til að ríkinu verði afhent vörumerkið Icelandic. 14. mars 2018 08:00 Mest lesið Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira
Merki Icelandic gefið til ríkisins Framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands segir sjóðinn ekki aðeins hafa skilað góðri ávöxtun, heldur einnig stöndugum félögum. Eiginlegri starfsemi er lokið. Ávöxtun sjóðsins nemur um 110 prósentum. Lagt verður til að ríkinu verði afhent vörumerkið Icelandic. 14. mars 2018 08:00