Óttast óeirðir eftir sakfellingu gúrús Stefán Ó. Jónsson skrifar 25. apríl 2018 06:23 Asram Bapu neitaði allri sök frá upphafi. Vísir/Getty
Indverski lærimeistarinn Asaram Bapu var í morgun sakfelldur fyrir að hafa nauðgað 16 ára stelpu árið 2013. Bapu er þjóðþekktur gúrú á Indlandi - ekki síst fyrir umdeilda hegðun sína og framgöngu en hann segist sjálfur eiga sér milljónir fylgismanna.Á vef breska ríkissjónvarpsins er þess meðal annars getið að Bapu eigi um 400 ashram um víða veröld. Ashram eru griðastaðir fyrir hindúa og þar hefur hinn 77 ára gamli gúrú kennt hugleiðslu og jóga í áratugi. Sem fyrr segir var hann sakfelldur í morgun fyrir nauðgun en ætla má að hann muni áfrýja dómnum til hærra dómstigs. Hvaða refsing honum verður gerð vegna brotsins mun liggja fyrir síðar í dag. Lögmaður þolandans sagði í samtali við fjölmiðla ytra að hann gerði ekki ráð fyrir öðru en að gúrúinn fengi lífstíðardóm. Lögreglan í Jodhpur, borginni þar sem dómurinn var kveðinn upp í morgun, er með hátt viðbúnaðarstig í dag af ótta við reiði áhangenda gúrúsins. Viðbúnaðurinn er ekki að ástæðulausu. Annar indverskur gúrú, Gurmeet Ram Rahim, var dæmdur fyrir nauðgun í fyrra. Stuðningsmenn hans ærðust og út brutust miklar óeirðir. Í þeim létust 23.
Mest lesið Tveir lagðir við gangstéttina Innlent Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Innlent Miðaði byssu á annan mann Innlent Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Innlent „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Innlent Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Erlent Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Innlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Greinir á við kjósendur sína Innlent Fleiri fréttir Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Ráðherrar Evrópu halda neyðarfund á þriðjudag Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Níu felldir í Kænugarði Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Sjá meira