Ásdís Karen byrjaði á þrennu og HK/Víkingur lagði FH Anton Ingi Leifsson skrifar 4. maí 2018 21:20 Ásdís Karen, til vinstri, og Guðrún Karítas, til hægri, voru báðar á skotskónum í kvöld. vísir/valur
Valur byrjar Pepsi-deild kvenna af krafti og nýliðar HK/Víkings gerðu sér lítið fyrir og unnu FH á heimavelli sínum i Kórnum í kvöld. Valur lenti í engum vandræðum með nýliða Selfoss á heimavelli en eftir að fyrsta markið kom opnuðust flóðgáttir fyrir Valsstúlkur. 8-0 urðu lokatölur. Ásdís Karen Halldórsdóttir sem kom frá KR í vetur skoraði þrjú af átta mörkum Vals, Stefanía Ragnarsdóttir gerði tvö og þær Guðrún Karítas Sigurðardóttir, Crystal Thomas og Elín Metta Jensen eitt hver. Ungt lið Selfyssinga í miklum vandræðum gegn feyknasterku liði Vals sem er til alls líklegt en Valur er með þrjú stig eftir fyrsta leikinn líkt og Breiðablik sem vann Stjörnuna í gær og HK/Víkingur sem vann FH í kvöld. HK/Víkingur sem einnig er nýliði í deildinni byrjaði af krafti gegn FH og komst yfir á 25. mínútu er fyrrum FH-ingurinn Maggý Lárentsínusdóttir stangaði boltann í netið. 1-0 í hálfleik. Heimasttúlkur byrjuðu seinni hálfleikinn einnig af krafti og tvöfölduðu forystuna með marki frá Stefaníu Ástu Tryggvadóttir. 2-0 og FH með bakið upp við vegg. Eftir tvöfalda skiptingu Orra Þórðarsonar varð smá líf í FH-stelpum sem minnkuðu muninn á 65. mínútu en það gerði varamaðurinn Birta Georgsdóttir, fædd árið 2002. Fleiri urðu mörkin ekki og sterk byrjun HK/Víkings. Markaskorarar og úrslit eru fengin frá www.urslit.net.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Besta sætið um Ómar: Væri búið að heyrast eitthvað ef þetta væri Aron eða Óli Handbolti „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Handbolti Össur gagnrýndi fýlulegar og miskunnarlausar spurningar Loga Handbolti Sjáðu myndirnar: Beygðir en ekki brotnir á bóndadegi Handbolti Jói Berg vill draga úr auglýsingaflóðinu í kringum handboltann Handbolti Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Enski boltinn Náðu loksins Ólympíufaranum á lista FBI yfir hættulegustu glæpamennina Sport „Börnin mín fengu mig til að hætta með reiðiköstin“ Fótbolti Skýrsla Vals: Ekki aftur Handbolti Körfuboltakvöld: Betra að temja villtan leikmann en að vera með einhverja rolu Körfubolti Fleiri fréttir Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Þrótti berst mikill liðsstyrkur úr Keflavík Jón Guðni aðstoðar Ólaf Inga Sjá meira