Bannað að segja bjórþamb gott fyrir heilsuna Stefán Ó. Jónsson skrifar 18. maí 2018 07:07 Bjórdrykkja hefur dregist mikið saman í Þýskalandi á síðustu áratugum. Vísir/Getty
Þjóðverjar hafa bannað bjórauglýsingar sem gefa til kynna að bjórdrykkja sé heilusamleg. Neytendasamtök í Berlín kærðu brugghúsið Harle vegna auglýsinga sem innihéldu þýska orðið bekoemmlich, sem vísar bæði til heilsu sem og til góðs bragðs. Vínframleiðendum var árið 2012 meinað að nota hugtakið í auglýsingum sínum. Hæsiréttur Þýskalands staðfesti úrskurð lægra dómsstigs sem kvað á um að orðið mætti ekki nota í tilfelli bjóra sem innihalda meira en 1.2% vínanda. Í rökstuðningi dómsins segir að orðið bekoemmlich sé ekki aðeins vísun í bragð heldur jafnframt heilnæmi - eitthvað sem erfitt er að fullyrða um í tilfelli áfengis. „Þjóðverjar túlka hugtakið bekoemmlich sem eitthvað sem er „heilsusamlegt,“ „heillavænlegt“ og „gott fyrir meltinguna,“ segir í rökstuðningnum. Þegar orðið sé notað til að lýsa matvörum sé yfirleitt um að ræða eitthvað sem meltingarkerfið eigi auðvelt með að vinna úr - jafnvel þó mikils sé neytt af vörunni í lengri tíma. Mikið bjórþamb kunni þó að hafa í för með sér ýmsa heilsukvilla að sögn þýska dómstólsins. Bjórneysla í Þýskalandi hefur dregist saman um 17 prósent frá árinu 1993. Þýskir bjórframleiðendur vonast þó til að heimsmeistaramótið í knattspyrnu, sem hefst í júní, verði til þess að auka bjórdrykkjuna.
Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Sjá meira