Mannskæðasta skotárás í 22 ár Stefán Ó. Jónsson skrifar 11. maí 2018 04:56 Osmington er á vesturströnd Ástralíu, sunnan við Perth. Google maps
Sjö einstaklingar fundust látnir á sveitabæ í vesturhluta Ástralíu í gærkvöld. Fjórir þeirra voru á barnsaldri. Líkin fundust skammt frá bænum Osmington sem er um 280 kílómetra suður af borginni Perth á vesturströnd landsins. Áströlsk yfirvöld hafa ekki viljað gefa upp hvernig fólkið lést en gátu þó staðfest að tvö skotvopn fundust á vettvangi. Þannig er ekki útilokað að byssumaðurinn hafi svipt sig lífi eftir að hafa skotið hina sex til bana. Ekki liggur fyrir á þessari stundu hvort einstaklingarnir hafi tengst fjölskylduböndum. „Lík tveggja fullorðinna einstaklinga fundust utandyra og fimm lík fundust inni í byggingu í dreifbýli,“ er haft eftir lögreglustjóranum Chris Dawson á vef breska ríkisútvarpinu. Hann bætti við að svo virðist sem einhver skotsár hafi fundist á líkunum en treysti sér ekki til að ræða það nánar. Málið sé enn til rannsóknar og nú sé unnið í því að hafa samband við ættingja hinna látnu. Ef þetta reynist hafa verið skotárás er um að ræða mannskæðustu árás sem framin hefur verið í Ástralíu frá því að 35 voru drepnir í Tasmaníu árið 1996. Árásin varð til þess að Ástralar tóku skotvopnalöggjöfina sína til gagngerrar endurskoðunar.
Mest lesið Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Fleiri fréttir Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Sjá meira