Skapandi námskeið fyrir unglinga sem hafa áhuga á kvikmyndalist Anra Films kynnir 8. júní 2018 16:30 Anra Films býður upp á stuttmyndanámskeið í júní og júlí fyrir 13-16 ára unglinga.
Myndefni skipar stórt hlutverk í lífi unglinga í dag. Eins er þekkingin á tækni og sköpun mjög mikil hjá þessum hóp og áhugasvið margra liggur einmitt innan skapandi listgreina á borð við kvikmyndalist. Margir líta svo á að kvikmyndalistin sé aðeins til dægrastyttingar og gamans en það hefur sýnt sig að skapandi listgreinar eru mjög þroskandi og eins jákvæðar fyrir andlega líðan. Þær eru t.a.m. frábær leið fyrir börn og unglinga til að læra að taka ákvarðanir og leysa vandamál. Hvert skref felur í sér að taka ákvörðun: hvaða búnað þarf ég, frá hvaða sjónarhorni á ég að skjóta o.s.frv. Allir hafa ímyndunarafl. Listin tekur það skref lengra. Með listum búa unglingarnir til eitthvað sem þangað til var aðeins ímyndun. Þannig skapast yfirgripsmiklar hugmyndir. Margir unglingar eiga erfitt með að tjá líðan sína og tilfinningar og eiga einnig í erfiðleikum með að koma hæfileikum sínum upp á yfirborðið en finna að þeir eiga auðveldara með að tjá sig í gegnum list. Það er leið til að sýna hæfileika sem ekki koma upp á yfirborðið annars. List er því kjörin leið til að miðla hugmyndum, tilfinningum og lausnum á annan hátt en munnlega eða skriflega.Annetta Ragnarsdóttir.Anra Films býður upp á stuttmyndanámskeið í júní og júlí fyrir 13-16 ára unglinga. Á námskeiðinu fá unglingarnir að vinna að sinni eigin stuttmynd, allt frá handritagerð til eftirvinnslu og fá með þessu móti innsýn inn í þær fjölmörgu greinar sem fyrirfinnast innan kvikmyndageirans. Námskeiðið verður kennt í Kvikmyndaskóla Íslands og þar með munu nemendur vinna stuttmyndir sínar með raunverulegum tækjum og eftirvinnsluforritum. Annetta Ragnarsdóttir kvikmyndagerðarkona stýrir námskeiðinu en hún er útskrifuð sem leikstjóri og framleiðandi frá Kvikmyndaskóla Íslands og hefur meðal annars starfað við gerð mynda á borð við Hjartastein, Ófærð og Víti í Vestmannaeyjum. Annetta rekur sitt eigið framleiðslufyrirtæki sem framleiðir fyrst og fremst heimildamyndir. Annetta er að auki markþjálfi og nýtir hún sér markþjálfunarfræði til að draga fram það besta í fari hvers og eins. Finna má upplýsingar um námskeiðin á anra.is.
Mest lesið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Lífið Fundu ástina í stjórnarráðinu Lífið Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Lífið Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Lífið Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Lífið „Ekki láta aldurinn eða stoltið stoppa þig“ Lífið Kynlíf á ekki að vera vont Lífið Fleiri fréttir Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira