One Tree Hill stjörnurnar saman á ný Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 15. júní 2018 12:31 Fimm leikarar úr One Tree Hill koma aftur saman en í þetta sinn í jólamynd. Vísir/getty
Aðdáendur unglingaþáttanna One Tree Hill hafa verið bænheyrðir því í gærkvöldi var það tilkynnt að fimm leikarar úr þáttaröðinni vinsælu kæmu saman á ný en í þetta skiptið í jólamyndinni The Christmas Contract. Leikararnir fimm eru Hilarie Burton, sem var ein aðalleikkvenna þáttanna en hún fór með hlutverk hinnar listrænu Peyton Sawyer, Robert Buckley sem lék Clay Evans en hann kom seinna inn í þættina, Danneel Ackles sem lék Rachel Gatinu, Antwon Tanner sem lék hinn viðkunnanlega „Skills“ auk þess sem Tyler Hilton, sem lék Chris Keller, verður með tónlistaratriði í kvikmyndinni.Hilarie Burton og Sophia Bush léku bestu vinkonur í One Tree Hill en þær eru líka mjög nánar í raunheimi.Vísir/gettyOne Tree Hill þættirnir voru í sýningu á árunum 2003 -2012 á sjónvarpsstöðinni The WB (í dag CW) en auk Hilarie Burton, voru þau Sophia Bush, Chad Michael Murrey, Bethany Joy Lenz og James Lafferty í aðalhlutverkum. Aðdáendahópur þáttanna er virkilega einarður og hefur aldrei gefið upp vonina um endurmót vinna sinna af skjánum. One Tree Hill virðist ekki ætla að halda áfram en jólamyndin hlýtur að vera aðdáendum einhver sárabót. Þrátt fyrir að sex ár séu liðin frá því þættirnir hættu virðist dramað enn krauma undir niðri hjá tveimur sem fóru með aðalhlutverk þáttanna. Chad Michael Murray og Sophia Bush voru gift í fimm mánuði á meðan á þáttunum stóð en Bush skildi við Murrey eftir að upp komst um framhjáhald leikarans. Í gær sagði Bush frá því að hana hefði ekki raunverulega langað til þess að giftast Murrey og að hún hafi fundið fyrir þrýstingi til að ganga í hjónaband með honum. Fjölmiðlafulltrúi Murrey brást við ummælum Bush og sagði að þetta væri fáránlegt. Bónorð Murreys hefði ekki komið til af annarlegum tilgangi. Hann hafi einfaldlega verið ástfanginn af henni.
Mest lesið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Sahara Ray látin Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Richard Riehle látinn Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira