Morðhrina vegna orðróms á samfélagsmiðlum Stefán Ó. Jónsson skrifar 11. júní 2018 08:03 Múgur myrti þá Abijeet Nath og Nilotpal Das á dögunum. Facebook
Indverska lögreglan hefur handtekið 16 einstaklinga í tengslum við morð á tveimur mönnum í norðausturhluta landsins. Talið er að mennirnir tveir séu í hópi fólks sem drepið hefur verið á Indlandi á síðustu vikum eftir að skæður orðrómur fór á flug um tengsl fólksins við meintan barnaránshring. Mennirnir tveir, þeir Abijeet Nath og Nilotpal Das, voru myrtir eftir að hafa stöðvað bifreið sína og spurt um leiðsögn í héraðinu Assam. Stór hópur heimamanna veittist þá að þeim og endaði það með andláti þeirra beggja. Orðrómar um barnarán hafa farið á flug meðal Indverja á samfélagsmiðlunum WhatsApp. Talið er að um 6 einstaklingar hafi verið myrtir vegna meintra tengsla þeirra við barnarán síðastliðinn mánuð. Haft er eftir talsmanni indversku lögreglunnar að erfitt geti reynst að stöðva slíkan orðróm þegar hann er kominn á flug á samfélagsmiðlum. Engu að síður fylgist lögreglumenn með umræðunni og reyni að grípa inn í þegar þeir geta. Ekki er vitað hvernig orðrómurinn kviknaði en á vef breska ríkisútvarpsins segir að árásir, eins og þær sem dregið hafa einstaklingana 6 til dauða, séu algengar á Indlandi. Myndbönd, sem eiga að sýna barnarán á götum úti, hafi að sama skapi fengið mikla athygli á indverskum samfélagsmiðlum. Það hafi blásið upp andúð á ókunnugum og þeim sem tala ekki mállýskur heimamanna.
Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Fleiri fréttir Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Sjá meira