Eigið fé Kristins er 21,5 milljarðar króna Helgi Vífill Júlíusson skrifar 5. júlí 2018 06:00 Guðbjörg M. Matthíasdóttir á ársfundi LÍÚ á sínum tíma. VISIR/ANTON
Hagnaður fjárfestingarfélagsins Kristins, sem er í eigu Guðbjargar Matthíasdóttur og fjölskyldu, jókst um 18 prósent á milli ára og var 749 milljónir króna í fyrra. Einkum er um að ræða vaxtatekjur og verðbreytingu markaðsverðbréfa. Eigið fé var 21,5 milljarðar króna við árslok og arðsemi eiginfjár var fjögur prósent í fyrra. Kristinn skuldar lítið, rúmlega 400 milljónir króna, einkum hluthöfum. Félagið mun ekki greiða arð í ár. Kristinn á óskráð hlutabréf sem metin voru á um tíu milljarða króna í bókum félagsins og verðbréf sem metin voru á 8,5 milljarða króna og jókst virði þeirra um 57 prósent á milli ára. Fjárfestingarfélagið á 1,3 milljarða á bankabók. Bókfært virði fasteignafélagsins Korputorgs var 5,3 milljarðar króna og jókst um 970 milljónir króna á milli ára, virði prentsmiðjunnar Odda jókst um 104 milljónir króna á milli ára og var 414 milljónir og heildsalan Ísam var metin á 3,7 milljarða sem er 16 prósent lækkun á milli ára. Fram hefur komið í Markaðnum að Ísam hafi tapað 301 milljón króna í fyrra. Erlend verðbréf félagsins voru metin á 3,7 milljarða króna og virði þeirra jókst um sjö prósent á milli ára. Virði annarra verðbréfa jókst um 2,6 milljarða króna og voru bréfin metin á 3,4 milljarða króna og ríkistryggð markaðsbréf voru bókfærð á 1,4 milljarða króna og jókst virði þeirra um 24 prósent á milli ára. Félagið á 1,3 milljarða á bankabók.
Birtist í Fréttablaðinu Sjávarútvegur Tengdar fréttir Guðbjörg Matthíasdóttir greiddi sér 3,2 milljarða í arð úr félagi sínu Sjávarútvegur ÍV fjárfestingafélag ehf., eigandi Ísfélags Vestmannaeyja eins stærsta útgerðarfélags landsins, greiddi út rúma 3,2 milljarða króna í arð til eiganda síns í fyrra. 3. júlí 2018 06:00 Íslensk Ameríska tapaði 301 milljón 27. júní 2018 06:00 Mest lesið Verja súkkulaðimyndirnar á Swiss Miss Neytendur „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Viðskipti innlent Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Samstarf Malasar í samstarf við GreenFish Viðskipti innlent Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Viðskipti erlent Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Samstarf Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Viðskipti erlent Verðbólgan verði þrálát út árið Viðskipti innlent Úrelt kerfi: „Erum föst í því að allir verji sitt svæði og sitt fjármagn“ Atvinnulíf Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Sjá meira
Guðbjörg Matthíasdóttir greiddi sér 3,2 milljarða í arð úr félagi sínu Sjávarútvegur ÍV fjárfestingafélag ehf., eigandi Ísfélags Vestmannaeyja eins stærsta útgerðarfélags landsins, greiddi út rúma 3,2 milljarða króna í arð til eiganda síns í fyrra. 3. júlí 2018 06:00
„Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Viðskipti innlent
„Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Viðskipti innlent