Eitt slíkt herbergi er að finna á The Retreat-hótelinu. Um er að ræða næstum 200 fermetra lúxussvítu, þrefalt stærri en önnur herbergi hótelsins. Í herberginu má finna eldhús, borðstofu og arinn. Þar að auki er heilulind í herberginu, útbúin gufubaði og einkaaðgengi að lóninu.
Sjá einnig: Ódýrasta nóttin á stjörnuhótelinu í Bláa lóninu á 100.000 krónur
Nóttin á herberginu kostar 10.500 dali, rúmlega 1.1 milljón króna, og ekki má bóka það í styttri tíma en tvær nætur. Herbergið er sem fyrr segir ekki sjáanlegt á vefsíðu hótelsins - engar myndir, engin lýsing, ekki neitt.
Hvernig getur maður þá bókað herbergið ef það er ekki auglýst? Jú, til að bóka svítuna þarf sérstakt boð frá hótelinu.

Már útilokar ekki að herbergið verði einhvern tímann „opinberað.“ Þangað til vilji Bláa lónið að herbergið sé „falinn demantur.“
Í umfjöllun Bloomberg er rætt við hótelsérfræðing sem segir að sambærileg herbergi þekkist víða um heim. Margvíslegar ástæður geta verið fyrir því að þau séu ekki auglýst; til að mynda vilji hótelstjórar oft vernda húsgögn herbergisins - sem séu yfirleitt í dýrari kantinum. Það sé ekki óalgengt að hópar fólks taki sig saman og leigi dýr herbergi fyrir veislur, sem skemmist svo í partýinu.
Þar að auki eru minni líkur á því að slík herbergi, sem aðeins fastagestir og aðrir sem hafa fengið boð þekki til, séu afbókuð með stuttum fyrirvara - með tilheyrandi kostnaði fyrir hótelið.
Nánar má fræðast um leyniherbergin í frétt Bloomberg. Hér að neðan má sjá umfjöllun kvöldfrétta Stöðvar 2 um byggingu hótelsins.