Howard búinn að semja í höfuðborginni Arnar Geir Halldórsson skrifar 13. júlí 2018 07:30 Dwight Howard er kominn í Washington Wizards vísir/getty
Miðherjinn tröllvaxni, Dwight Howard, er genginn til liðs við Washington Wizards í NBA deildinni eftir að hafa undirritað tveggja ára samning við félagið en samningurinn er uppsegjanlegur af hálfu Howard næsta sumar. Þessi skipti hafa legið í loftinu undanfarnar vikur en nú er búið að tilkynna opinberlega um komu kappans til Washington. Howard lék með Charlotte Hornets á síðustu leiktíð þar sem hann spilaði alla leiki nema einn og skilaði 16,6 stigum að meðaltali í leik auk þess að taka 12,5 fráköst að meðaltali í leik. Hann hefur verið á flakki undanfarin ár og staldrað stutt við hjá nokkrum félögum eftir að hafa byrjað NBA ferilinn með Orlando Magic þar sem hann lék í átta ár. Þaðan gekk Howard í raðir LA Lakers og spilaði með liðinu í eitt ár áður en hann færði sig um set til Houston Rockets þar sem hann spilaði þrjú tímabil. Howard lék svo eitt tímabil með Atlanta Hawks áður en hann fór til Hornets fyrir síðustu leiktíð. Þessi 211 sentimetra miðherji er orðinn 32 ára gamall en hann kom inn í deildina með trukki árið 2004 eftir að hafa verið valinn númer eitt í nýliðavalinu.OFFICIAL: We've signed Dwight HowardWelcome to the #DCFamily, @DwightHoward!MORE: https://t.co/M1Dv2nT2vM pic.twitter.com/AJnwZnyknG— Washington Wizards (@WashWizards) July 12, 2018
NBA Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport „Takk fyrir ástina“ Fótbolti Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Körfubolti Stóru liðin á eftir Kroupi Enski boltinn Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Körfubolti Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Strand Larsen skoraði tvö þegar Norðmenn unnu Svía þægilega Fótbolti Fleiri fréttir Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Sjá meira