Guide to Iceland semur við Philippine Airlines um markaðstorg Samúel Karl Ólason skrifar 3. ágúst 2018 15:00 Xiaochen Tian, framkvæmdarstýra Guide to Iceland, Jaime Bautista, forstjóri Philippine Airlines, Bonifacio Sam, forstjóri PAL Express, og Gísli Eyland, viðskiptaþróunarstjóri Travelshift.
Íslenska fyrirtækið Guide to Iceland hefur, í gegnum dótturfélagið Travelshift, komist að samkomulagi við Philippine Airlines um stofnun markaðstorgs fyrir ferðaþjónustu í sameiginlegri eigu beggja aðila. Markaðstorgið nýja nefnist Guide to philippines og er því ætlað að feta í fótsport þess mikla árangurs sem Guide to Iceland og Travelshift hafa náð við markaðssetningu á Íslandi, samkvæmt tilkynningu. Travelshift er hugbúnaðararmur Guide to Iceland. Fyrirtækið hefur síðustu misseri unnið að þvi að koma á laggirnar nýjum samstarfsverkefnum utan Íslands, en Filippseyjar verða fjórða landið sem Travelshift hugbúnaðurinn nemur utan landsteinanna. „Við ráðumst í þetta verkefni af miklum hug,” segir Sigurður Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Travelshift. „Við höfum unnið þrotlaust að því að færa Travelshift frá því að vera hreinn innanhúshugbúnaður yfir í að verða hugbúnaðarlausn sem við getum nýtt alþjóðlega. Nú höfum við fundið frábæran samstarfsaðila í Philippine Airlines, stærsta flugfélagi Filippseyja, og verkefnið fer vel af stað.” Til stendur að fleyta Guide to Philippines af stað á þriðja fjórðungi þessa árs. „Hið nýja félag mun geta nýtt þá þróun sem hefur átt sér stað á Travelshift hugbúnaðnum á síðustu árum. Það þýðir að við munum geta stytt verulega þann tíma sem það tekur að komast af stað af fullum krafti. Af sama skapi mun sterk staða Philippine Airlines, og það tengslanet sem fyrirtækið býr yfir innan ferðamannaiðnaðarins á Filippseyjum, reynast gríðarleg lyftistöng fyrir Guide to Philippines. Markaðurinn er risastór, og við hlökkum til að byggja stórt alþjóðlegt fyrirtæki með höfuðstöðvar á Íslandi,“ segir Sigurður ennfremur.
Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira