Innlent

Íssólgnir landsmenn láta veður ekki á sig fá

Jónas Már Torfason skrifar
Ísmaðurinn Daníel nýkominn úr ferð í Skagafjörð.
Ísmaðurinn Daníel nýkominn úr ferð í Skagafjörð. Fréttablaðið/Þórsteinn
Líkt og landsmenn vita verður tæplega talað um að sumarveður hafi verið í Reykjavík undanfarna mánuði. Þrátt fyrir veðurhörmungar höfuðborgarbúa er sala á ís úr Ísbílnum með besta móti.

Daníel Heide Sævarsson ísbílstjóri – eða ísmaðurinn, eins og börnin kalla hann – segir að Íslendingar kaupi sér ís sama hvernig viðrar.

„Reykvíkingar eru kannski þreyttir á veðrinu, en þeir taka þá bara sumarið með sér inn í stofu,“ segir Daníel.

Ísbíllinn er nokkurs konar ísbúð á hjólum. Hver bíll , en þeir eru tólf talsins á ferð á hverjum tíma, er með allt að tonn af ís um borð og stoppar á 50 til 100 stöðum á dag. Ísbílarnir ferðast um allt land, og er Daníel nýkominn úr sex daga ferð í Skagafjörð þar sem hann segist hafa gert gott mót.

„Það er blússandi sala úti á landi. Ef það er sól er salan frábær, sérstaklega ef það hefur rignt í einhverja daga á undan,“ en sólin hefur mun frekar brosað við landsbyggðinni en höfuðborginni þetta sumarið.

Ísbíllinn var umkringdur íssólgnum Reykvíkingum seinni partinn í gær í Hlíðunum þegar blaðamann bar að garði. „Við reynum að heimsækja sömu hverfin reglulega,“ segir Daníel og heldur áfram. „Við reynum líka að vera í sömu hverfum á sama degi vikunnar, þá veit fólk frekar af okkur.“

Hann segir að þegar sólin loksins láti sjá sig skemmi það ekki fyrir sölu á svalandi íspinnum. „Fyrirtæki hringja reglulega og biðja okkur um að koma. Einn daginn í júlí hringdu sex fyrirtæki á sama tíma um leið og sólin braust í gegnum skýin.“

Ísbílarnir eru einnig á ferð yfir veturinn og segir Daníel söluna í desember glettilega mikla

„Við förum í ferðir stuttu fyrir jól. Salan er eiginlega best í jólaferðunum,“ segir hann.

„Við erum með mikið úrval, 45 stakar tegundir af ís og fjölskyldupakka líka.“ Hann segir að margar af þeim tegundum sem til sölu eru í bílnum fáist hvergi annars staðar á landinu. „Við erum með ís sem er úti um allt á Norðurlöndunum, en sést ekki á Íslandi.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×