„Ekki ólíklegt“ að lánaskilmálar brotni Helgi Vífill Júlíusson skrifar 29. ágúst 2018 06:00 Snorri Jakobsson, greinandi Capacent, segir vandann í mörgum atvinnugreinum vera ósjálfbær kostnaðaraukning. Fréttablaðið/Ernir
Úlfar Steindórsson, stjórnarformaður Icelandair Group, segir að ýmislegt hafi farið í gegnum hugann þegar Björgólfur Jóhannsson, forstjóri fyrirtækisins, sagði upp störfum á mánudag. „Annað væri óeðlilegt,“ segir hann spurður hvort hann hafi leitt hugann að því að víkja úr starfi þegar forstjórinn tilkynnti um uppsögn sína á mánudag. Icelandair Group hefur birt þrjár afkomuviðvaranir það sem af er ári. Á árunum 2012 til 2016 gekk reksturinn vel og náði markaðsvirðið 187 milljörðum króna vorið 2016. Það segir sína sögu að nú er markaðsvirðið tæplega 34 milljarðar króna. Að teknu tilliti til arðgreiðslna nemur lækkunin 76 prósentum. Félaginu hefur ekki auðnast að fleyta kostnaðarhækkunum út í miðaverð eða sníða stakk eftir vexti samhliða aukinni samkeppni frá lággjaldaflugfélögum. Félagið stendur hins vegar fjárhagslega vel og var með 32 prósenta eiginfjárhlutfall við lok júní. Bogi Nils Bogason, sem sestur er tímabundið í stól forstjóra Icelandair Group og fjármálastjóri samstæðunnar í áratug, segir aðspurður að ef fram fari sem horfi sé hins vegar „ekki ólíklegt“ að félagið muni brjóta lánaskilmála. „Félagið er fjárhagslega sterkt og með mikinn sveigjanleika í efnahagsreikningi. Við getum unnið mjög auðveldlega úr því ef á þarf að halda.“ Icelandair Group eigi miklar eignir sem séu að langmestu leyti óveðsettar. Samkvæmt lánakvöðum mega vaxtaberandi skuldir ekki vera meiri en sem nemur 3,5 sinnum hagnaði fyrir fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA) síðustu tólf mánaða. Vaxtaberandi skuldir voru í lok júní 343 milljónir dala. Áætlað er að skuldirnar verði um 393 milljónir dala í árslok 2018 og ef miðað er við að EBITDA ársins verði 90 milljónir dala, sem er meðaltal afkomuspár stjórnenda, verða skuldirnar tæplega 4,4 sinnum EBITDA.Stjórnin mun ræða ábyrgðina Úlfar segir að stjórnin muni þurfa að ræða hver ábyrgð hennar sé. „Stjórnin mun ræða það og ræða við hluthafa.“ Úlfar hefur setið hvað lengst í stjórn Icelandair Group af stjórnarmönnunum eða frá september 2010. Blaðamaður nefnir að umtalsverðar breytingar hafi átt sér stað á undangengnum árum á stjórn félagsins. „Það er alltaf þannig að sá sem er á staðnum þegar illa gengur situr uppi með það. Óháð því hvort það sé hægt að tengja hann við það með einhverjum hætti eða ekki.“Úlfar Steindórsson, stjórnarformaður Icelandair.Að sögn Úlfars mun sá tími sem þarf til að ráða nýjan forstjóra vera nýttur til að vanda valið. „Það þýðir samt ekki að við ætlum að eyða einhverjum mánuðum í verkið. Það liggur ljóst fyrir.“ Hinn 13. ágúst fjárfesti ÚIfar, sem á helmings hlut í Toyota á Íslandi, fyrir 100 milljónir króna í Icelandair Group. Bréfin hafa lækkað um 15 prósent frá kaupunum. „Ég trúi áfram að þetta sé góð fjárfesting,“ segir hann. Elvar Möller, sérfræðingur í greiningardeild Arion banka, segir að samhliða því að enn eina ferðina sé félagið að upplýsa markaðinn um að það sé eitthvað í að meðalfargjöld fari að hækka sé það að viðurkenna að vandinn virðist vera dýpri en svo að það séu einungis ytri áhrifaþættir sem það þurfi að kljást við. „Í afkomuviðvöruninni gengst Icelandair við því að hagræðingaraðgerðir hafi ekki gengið nægilega hratt og vel fyrir sig ásamt því að þær breytingar sem gerðar voru á leiðakerfi félagsins í byrjun þessa árs hafi valdið misvægi á milli flugframboðs til Evrópu annars vegar og Norður-Ameríku hins vegar. Það hafi meðal annars leitt til þess að spálíkön hafi ekki virkað sem leið til lægri tekjuspár.“Krefjandi að taka við keflinu Sveinn Þórarinsson, sérfræðingur á hagfræðideild Landsbankans, segir að það verði örugglega krefjandi verkefni fyrir nýjan forstjóra Icelandair Group að taka við keflinu. „Það hefur skapast ákveðin fyrirtækjamenning og fyrirtækið er stórt. Viðkomandi þarf því að taka erfiðar ákvarðanir og mun eflaust rekast á veggi. Nú reynir enn fremur á stjórn Icelandair Group. Hún ræður nýjan forstjóra. Stjórnin velur hvers lags týpu af stjórnanda hún hefur mesta trú á miðað við þær aðstæður sem uppi eru. Þetta verður stór stefnumarkandi ákvörðun.“ Snorri Jakobsson, greinandi hjá Capacent, segir að það hafi verið viðloðandi við íslenskt atvinnulíf að það megi aldrei tala um fílinn í herberginu. „Fyrir hrun mátti ekki fjalla um fjármögnunarvanda og mikla viðskiptavild í bókum félaga. Í dag hefur verið ósjálfbær kostnaðaraukning í mörgum atvinnugreinum. Það skyldi engan furða að það var hrun hér fyrir 10 árum. Spurning hvað við Íslendingar höfum lært á þessum tíu árum,“ segir hann.
Birtist í Fréttablaðinu Ferðamennska á Íslandi Fréttir af flugi Icelandair Tengdar fréttir Þung skref að stíga til hliðar Fráfarandi forstjóri Icelandair hefur fulla trú á félaginu til lengri tíma litið. Hann segir eðlilegt að í flugrekstri séu uppsveiflur og niðursveiflur. 28. ágúst 2018 21:36 Stjórnarformaður Icelandair: „Rykið þarf að setjast“ Stjórnarformaður Icelandair Group segir allan kraft og fókus vera á að styrkja flugreksturinn og að félagið sé vel í stakk búið til þess að takast á við áföll sem dunið hafa yfir að undanförnu. 28. ágúst 2018 12:00 Mest lesið Gengi Sýnar í frjálsu falli Viðskipti innlent Erlent flugfélag eitt þriggja sem vill niðurgreiðslu á losun frá íslenska ríkinu Viðskipti innlent Sýn gefur út afkomuviðvörun Viðskipti innlent Fyrrverandi fréttastjóri til Gímaldsins Viðskipti innlent Íslenskt hugvit verndar fólk fyrir djúpfölsun Viðskipti innlent Óvenjulegur moli afrakstur sögulegs samstarfs Neytendur Næsti yfirmaðurinn þinn gæti verið gervigreind Atvinnulíf Þarf þrautseigju og útsjónarsemi til að ná að halda sjó Framúrskarandi fyrirtæki Icelandair hleypur í skarðið fyrir Play Viðskipti innlent Origo kaupir Kappa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Origo kaupir Kappa Fyrrverandi fréttastjóri til Gímaldsins Gengi Sýnar í frjálsu falli Erlent flugfélag eitt þriggja sem vill niðurgreiðslu á losun frá íslenska ríkinu Íslenskt hugvit verndar fólk fyrir djúpfölsun Sýn gefur út afkomuviðvörun Hagar högnuðust um 3,7 milljarða króna Brjóti mögulega samkeppnislög með því að tjá sig um dóminn Icelandair hleypur í skarðið fyrir Play ASÍ ítrekar ákall til stjórnvalda um að bregðast við lokun PCC á Bakka Gengi Icelandair hrapar Hærri kostnaður en áætlanir gerðu ráð fyrir Landsbankinn setur lánaumsóknir á ís vegna dómsins Sveitarfélagið og útgerðarmenn byggja nýjan miðbæ á Höfn Skilmálar Arion frábrugðnir en áhrifin væru óveruleg Gera ráð fyrir að fjárhagsleg áhrif muni nema innan við milljarði króna Ballið búið hjá Bankanum bistró Ómögulegt að meta áhrifin á bankana Vextirnir hækkuðu minna en stýrivextir þrátt fyrir ólögmæta skilmála Niðurstaðan sigur fyrir neytendur og lántakendur Skilmálarnir umdeildu ógiltir Vaktin: Dómur kveðinn upp í Vaxtamálinu Kristín Hrefna tekur við sem framkvæmdastjóri Hopp Ríkisstjórnin búin undir báðar niðurstöður Stórir skellir geri ekki boð á undan sér Hlutu risastyrk til að stofna miðstöð um gervigreind Dómur kveðinn upp í Vaxtamálinu á morgun Hagnaður dróst verulega saman en félagið á 850 milljónir Sæmundur nýlegur forstöðumaður hjá HR Eignaumsjón kaupir Rekstrarumsjón Sjá meira
Þung skref að stíga til hliðar Fráfarandi forstjóri Icelandair hefur fulla trú á félaginu til lengri tíma litið. Hann segir eðlilegt að í flugrekstri séu uppsveiflur og niðursveiflur. 28. ágúst 2018 21:36
Stjórnarformaður Icelandair: „Rykið þarf að setjast“ Stjórnarformaður Icelandair Group segir allan kraft og fókus vera á að styrkja flugreksturinn og að félagið sé vel í stakk búið til þess að takast á við áföll sem dunið hafa yfir að undanförnu. 28. ágúst 2018 12:00
Erlent flugfélag eitt þriggja sem vill niðurgreiðslu á losun frá íslenska ríkinu Viðskipti innlent
Erlent flugfélag eitt þriggja sem vill niðurgreiðslu á losun frá íslenska ríkinu Viðskipti innlent