Þrír skotnir til bana í banka í Cincinnati Samúel Karl Ólason skrifar 6. september 2018 16:37 Lögreglan segir árásarmanninn hafa skotið á fólk af handahófi fyrir utan Fifth Trad Bankann í miðbæ borgarinnar og svo næst hafi hann farið inn í anddyri bankans þar sem hann skiptist á skotum við lögregluþjóna. Vísir/AP
Fjórir eru dánir eftir skotárás í banka í Cincinnati í Bandaríkjunum. Fimm eru sagðir hafa særst í árásinni en árásarmaðurinn sjálfur er með hinum látnu. Lögreglan segir árásarmanninn hafa skotið á fólk af handahófi fyrir utan Fifth Trad Bankann í miðbæ borgarinnar og svo næst hafi hann farið inn í anddyri bankans þar sem hann skiptist á skotum við lögregluþjóna. Ekki liggur fyrir hvort árásarmaðurinn beindi byssu sinni að sjálfum sér eða var felldur af lögregluþjónum, samkvæmt AP fréttaveitunni.https://apnews.com/9e14b6229af04b55af5d03459b4fd945John Cranley, borgarstjóri Cincinnati, segir árásarmanninn hafa skotið á saklaust fólk og að aðstæður á vettvangi hafi verið hræðilegar. Ástæða árásarinnar liggur ekki fyrir og rannsakar lögreglan málið. „Það er eitthvað verulega sjúkt í gangi og við sem þjóð þurfum að vinna á því,“ sagði Cranley. þetta er mannskæðasta skotárás Cincinnati frá 2013. Í samtali við Cincinnati Enquirer segir eitt vitni að hann hafi verið á leið inn í bankann þegar fólk hrópaði á hann og varaði hann við skothríðinni. Hann sagði konu sem var einnig á leið inn í bankann ekki hafa heyrt í honum og öðrum þar sem hún var með heyrnartól.„Hún gekk inn um dyrnar og hann skaut hana,“ sagði Leonard Cain. Hann sagðist hafa heyrt allt að fimmtán skot.
Bandaríkin Skotárásir í Bandaríkjunum Mest lesið Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Innlent Lalli Johns er látinn Innlent „Þau ákváðu einfaldlega að hann væri minna fatlaður í Garðabæ“ Innlent Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Erlent Hlýnandi veður og gæti farið í tuttugu stig á morgun Veður Láta bandarískan gísl lausan Erlent Kölluð út vegna viðskiptavinar með æsing Innlent Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Innlent Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Innlent Fleiri fréttir Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Skammvinnu vopnahléi virðist lokið Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Sovéskt geimfar hrapaði til jarðar eftir misheppnað ferðalag til Venus Fundu mögulega eitt af 67 fórnarlömbum hálfri öld síðar Kínverskir verktakar fá ekki að bora skipagöng í Noregi Vopnahlé í höfn milli Indlands og Pakistans Kim lofar hermenn sína sem börðust í Kúrsk sem hetjur Átökin ná nýjum hæðum Borgarstjóri í Bandaríkjunum handtekinn vegna mótmæla Yfirvöld Mexíkó kæra Google Gamlar nektarmyndir felldu glænýjan þjóðaröryggisráðgjafa Svíþjóðar Gerir Pirro að ríkissaksóknara í DC Bein útsending: Fyrsta messa nýs páfa Býst við að bróðir sinn Leó feti í fótspor Frans Stigmögnunin heldur áfram Hvað vitum við um Leó páfa? Norðmenn undirbúi sig undir möguleg stríðsátök „Þvílík spenna og þvílíkur heiður fyrir landið okkar“ Bíða með að stimpla AfD sem öfgasamtök Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Samþykktu Trump-samninginn einróma Sjá meira