Ísraelar íhuga árásir á Írana í Írak Samúel Karl Ólason skrifar 3. september 2018 10:35 Avigdor Lieberman, varnarmálaráðherra Ísrael. Vísir/EPA
Hernaðaryfirvöld Ísrael hafa ýjað að því að gerðar verði árásir á skotmörk í Írak sem tengjast Íran. Reglulegar árásir eru gerðar á skotmörk í Sýrlandi þar sem umsvif Írana eru mikil en varnarmálaráðherra Ísrael, Avigdor Lieberman, sagði á ráðstefnu í morgun að þeir myndu ekki hika við að gera árásir í Írak eins og þeir hafi gert í Sýrlandi. „Ég er að segja að við munum berjast gegn öllum ógnunum frá Írönum, og það skiptir ekki máli hvar,“ sagði Lieberman.Fregnir hafa borist af því að Íranir hafi komið skammdrægum eldflaugum fyrir hjá bandamönnum sínum meða sjíta í Írak og hernaðarráðgjafar væru sömuleiðis að þjálfa menn í Írak. Hægt væri að skjóta eldflaugunum að bæði Ísrael og Sádi-Arabíu og það sem meira er sagði í frétt Reuters að Íranir væru að aðstoða bandamenn sína við að koma upp eldflaugaframleiðslu. Yfirvöld Íran sögðu fréttina þó ranga.Ísraelar hafa gert fjölda árása í Sýrlandi, sem sagðar eru beinast gegn Íran og bandamönnum þeirra í hryðjuverkasamtökunum Hezbollah.
Írak Íran Ísrael Mið-Austurlönd Mest lesið Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Erlent Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Innlent Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Erlent Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Innlent Þau kvöddu á árinu 2024 Erlent Dregur úr vindi en áfram vetrarveður Veður Jólakindin Djásn á Stokkseyri Innlent Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Innlent Um helmingur farþega komst lífs af Erlent Þak fauk nánast af hlöðu Innlent Fleiri fréttir Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Alls kyns jól um allan heim Um helmingur farþega komst lífs af Rússar fagna vel heppnaðri árás á orkuinnviði Úkraínu Þau kvöddu á árinu 2024 Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Samstarfsmaður Escobar frjáls ferða sinna Kraumar í fjarhægriflokknum sem árásarmaðurinn studdi Clinton lagður inn á sjúkrahús Lýsti yfir sakleysi sínu Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Segir Grænland ekki falt Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjá meira