Áhöfn flutningaskips í haldi sjóræningja Andri Eysteinsson skrifar 23. september 2018 20:38 Sjóræningjar komust um borð í skipið við Bonnyeyju sem er rauðmerkt á myndinni. Skjáskot/ Google Maps
Áhafnarmeðlimir flutningaskipsins MV Glarus sem skráð er í landlukta landinu Sviss hafa verið teknir í gíslingu af sjóræningjum úti fyrir ströndum afríkuríkisins Nígeríu. CNN greinir frá. Sjóræningjaárásir hafa þekkst úti fyrir ströndum Afríku undanfarin ár, oftast eru sjórán þó tengd við austurströnd Afríku og þá sérstaklega hafsvæðin við Sómalíu. Rekstraraðili MV Glarus, Massoel Shipping tilkynnti í yfirlýsingu frá atburðunum sem hentu skipverja í dag. MV Glarus var á leið frá Lagos til Port Harcourt sem einnig er í Nígeríu með allar lestar fullar af hveiti. Snemma á laugardagsmorgni þegar skipið var statt um 45 sjómílur suð suðaustan af Bonnyeyju létu sjóræningjar til skarar skríða. Ræningjarnir komust um borð með hjálp stiga, eyðilögðu samskiptabúnað og tóku tólf af 19 skipverjum í gíslingu. Noemie Charton, talskona utanríkisþjónustu Sviss, sagði í samtali við CNN að yfirvöldum væri kunnugt um árásina en staðfesti að enginn skipverjanna væri svissneskur ríkisborgari, Charton gat ekki tjáð blaðamanni CNN hvers lenskir skipverjarnir sem nú eru í haldi sjóræningjanna eru.
Nígería Sómalía Sviss Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Fleiri fréttir Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Sjá meira