Íranir hugðu á árás á danskri jörð Atli Ísleifsson skrifar 30. október 2018 13:05 Anders Samuelsen, utanríkisráðherra Danmerkur, segir málið "fullkomlega óásættanlegt“ og að danska ríkisstjórnin muni grípa til aðgerða vegna málsins. Getty/Ole Jensen
Lögregla í Danmörku telur að útsendarar írönsku leyniþjónustunnar hafi haft í hyggju að framkvæma árás gegn fólki í Danmörku.Danskir fjölmiðlar greina frá því að norskur ríkisborgari af írönskum uppruna sé í haldi, grunaður um að hafa aðstoðað írönsku leyniþjónustuna við að skipuleggja árás. Danska öryggislögreglan PET segir að maðurinn hafi verið handtekinn 21. október síðastliðinn. „Þetta snýr að starfsemi íranskrar leyniþjjónustu, sem við teljum að hafi ætlað sér að framkvæma árás í Danmörku,“ sagði Finn Borch Andersen, yfirmaður PET, á fréttamannafundi í dag. Andersen var þar að útskýra aðgerðir lögreglu þann 28. september síðastliðinn, þar sem lögregla stóð fyrir umfangsmikilli aðgerð og lokaði meðal annars Eyrarsundsbrúnni. Á þeim tíma var ekki greint frá um hvað málið snerist. Að sögn Andersen snerist málið um liðsmann ASMLA-hópsins, hreyfingar sem berst fyrir sjálfstæði Ahwaz-héraðs í suðvesturhluta Írans, sem lögregla taldi vera í hættu.Danir munu bregðast við Hinn handtekni neitar sök en Andersen segir að árásin hafi átt að beinast gegn hópi Írana í Damörku. Anders Samuelsen, utanríkisráðherra Danmerkur, segir málið „fullkomlega óásættanlegt“ og að danska ríkisstjórnin muni grípa til aðgerða vegna málsins. Rætt verði við evrópskar vinaþjóðir Danmerkur um með hvaða hætti það skuli gert.
Danmörk Íran Mið-Austurlönd Norðurlönd Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira