Beðið eftir broskallinum: Hreinsitæki gefur til kynna drykkjarhæft vatn Heimsljós kynnir 12. nóvember 2018 11:00 Íbúarnir fá leiðbeiningar um notkun vatnshreinsitækisins. SOS Barnaþorpin á Íslandi.
SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa með tæplega 70 milljóna króna styrk frá utanríkisráðuneytinu afhent öllum fjölskyldum í verkefni í Eþíópíu, sólarknúin vatnshreinsitæki með búnaði sem segir til um það hvenær vatn er orðið drykkjarhæft. Verkefnið er svokallað fjölskyldueflingarverkefni og nær til sárafátækra barnafjölskyldna á Tulu-Moye svæðinu. Um 1500 börn og fjölskyldur þeirra njóta góðs af verkefinu sem hófst í ársbyrjun og lýkur í árslok 2021. Samkvæmt frétt á vef SOS Barnaþorpanna á Íslandi fengu 567 sjálfboðaliðar þjálfun til að kenna fjölskyldunum á vatnshreinstækið. „Það nemur styrk UV sólargeislanna sem drepa sýkla og örverur og er þannig búið að á því getur bæði birst broskarl og fýlukarl. Ef plastflaska full af vatni er látin standa úti í sólinni og tækið við hliðina á, gefur broskarlinn til kynna að vatnið sé orðið drykkjarhæft. Svo lengi sem fýlukarlinn er á tækinu, er vatnið enn ódrykkjarhæft. Með þessu móti er hægt að sporna við sjúkdómum sem orsakast vegna skítugs drykkjarvatns,“ segir í fréttinni. Vitnað er í Gishu Tumsa, 35 ára einstæða þriggja barna móður sem segir vatnshreinsitækið hafa gjörbreytt öllu. „Það veitir mér mikla öryggiskennd að vita núna að við erum að drekka ómengað vatn. Það var líka vitundarvakning fólgin í kennslunni því nú sýni ég meiri varkárni með val á ílátum undir vatnið.“ SOS Barnaþorpin á Íslandi vinna verkefnið í samvinnu við yfirvöld á Tulu-Moye svæðinu og heimafólk. Markmið þess er að auka hæfni og getu þessara fjölskyldna til að standa á eigin fótum og mæta þörfum barnanna svo velferð þeirra sé tryggð til framtíðar. Skjólstæðingar verkefnisins fá aðgang að heilsugæslu, mataraðstoð, menntun og fræðslu ásamt því að þeir geta fengið vaxtalaust örlán frá SOS Barnaþorpunum. Framlögum Fjölskylduvina SOS Barnaþorpanna á Íslandi er ráðstafað í verkefnið og annað sambærilegt í Perú.Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Mest lesið Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent Tók málin í eigin hendur og opnar dagforeldravef Innlent Fundu mögulega eitt af 67 fórnarlömbum hálfri öld síðar Erlent Átökin ná nýjum hæðum Erlent Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Erlent Blasi illa við að það eigi að troða áformunum í gegnum kerfið Innlent Kínverskir verktakar fá ekki að bora skipagöng í Noregi Erlent Samningurinn nauðsynlegur og ekkert athugavert við hann Innlent Hópsmit á Mánagarði ein „alvarlegasta uppákoma af þessu tagi“ Innlent Þjófar réðust á starfsmann verslunar Innlent