Smíða úr gulli með glæpasögur í eyrunum Raus Jewelry kynnir 22. nóvember 2018 10:30 Bak við Raus Jewelry standa, Svana Berglind Karlsdóttir, Rut Ragnarsdóttir og Auður Hinriksdóttir. Raus Jewelry
Raus Reykjavík Jewelry er þátttakandi í sýningu Handverks og hönnunar í fyrsta skipti í ár. Bak við Raus Jewelry standa þrjár konur, Svana Berglind Karlsdóttir, Rut Ragnarsdóttir og Auður Hinriksdóttir og blása þær lífi í hugverk sín gegnum eðalmálma og steina. Þær hafa vakið mikla athygli á undanförnum misserum fyrir skartgripahönnun sína og flottar Instagram og Facebook síður þar sem þær deila myndum af verkstæði sínu. Dúndrandi jazz á verkstæðinu „Við ákváðum í upphafi að aðgreina ekki hlutina okkar og vinnum því allar undir Raus merkinu,“ segja þær. „Hönnunarferlið er gríðarlega misjafnt hjá okkur. Stundum mallar hugmyndin í höfðinu í marga mánuði áður en hún kemst í málminn en stundum höfum við valið okkur þema og unnið út frá því bæði sameiginlega og sitt í hvoru lagi. Við reynum líka að fylgjast með stefnum og straumum í hönnun en líkt og hjá mörgum hönnuðum þá eru það form og litir í náttúru, list og arkitektúr sem kveikja oft fyrstu hugmyndina. Við smíðina sköpum við svo rétta andrúmsloftið með tónlist og á meðan sumir hlutir verða til undir dúndrandi jazzi þá er ein okkar sem vinnur best með glæpasögur í heyrnartólunum. Svo er það einstöku sinnum þannig að maður byrjar með eina hugmynd en í smíðaferlinu þróast hún í eitthvað allt annað og skemmtilegra.“Takmarka sig ekki við einn stílBeðnar um að lýsa hönnun sinni nota þær orð eins og grófur minimalismi og kvenleg rómantík. Þær höfði til ólíkra hópa og vilji ekki takmarka sig við einn stíl. „Það eru gríðarleg forréttindi að fá að hanna og smíða eftir skapi og árstíð,“ segja þær.Gullsmíðaverkstæði Raus Reykjavík Jewelry er til húsa að Njálsgötu 22 í aldargömlu og sjarmerandi húsi og á verkstæðinu er notaleg stemning, alltaf heitt á könnunni og hægt að versla handsmíðaða hluti eða panta sérsmíði. „Einnig er hægt að versla á heimasíðu okkar www.raus.is og verðum við til dæmis með Cyber Monday" á mánudaginn þar sem ein línan okkar verður á góðu tilboði. Á sýningunni í ráðhúsinu núna um helgina verðum við líka með góða afslætti af skarti í jólapakkana."Sýning Handverks og hönnunar í Ráðhúsi Reykjavíkur hefst í dag klukkan 16. Opið verður frá föstudegi til mánudags milli klukkan 11 og 18.Þessi kynning er unnin í samstarfi við Raus Reykjavík Jewelry
Mest lesið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Lífið Fundu ástina í stjórnarráðinu Lífið Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Lífið Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Lífið Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Lífið „Ekki láta aldurinn eða stoltið stoppa þig“ Lífið Forsetinn hótar lögsókn: „Vertu viðbúinn Noah“ Lífið Fleiri fréttir Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira