„Þetta er mitt fyrsta ritverk,“ segir hann og viðurkennir að hafa komið sjálfum sér á óvart.
„Ég hafði ekki mikið hugsað um ritstörf þegar Tómas hjá Sögum útgáfu spurði mig hvort ég hefði ekki áhuga á að skrifa eins og eina bók um fótbolta? Ég sló til, fékk alveg frjálsar hendur og gat skrifað það sem mig langaði til. Þetta er eitt af því skemmtilegasta sem ég hef gert.“
Bókin er enda litrík eftir því og skemmtileg aflestrar. Gummi veður úr einu í annað og kryddar ríkulega með myndum. Hann segir sögur af sjálfum sér, fjallar um sterkustu leikmenn heims og setur saman draumaliðið.

Svo fylgja staðreyndir um ýmsar fótboltastjörnur dagsins í dag og hvernig þær voru á yngri árum. Ég vel nokkur uppáhalds mörk og vel líka í draumaliðið mitt, en það var vægast sagt erfitt. Við höfum átt svo ótrúlega marga góða leikmenn, karla og konur.
Margt af þessu fólki eru líka vinir mínir, en kannski ekki lengur, það komust náttúrlega bara ellefu í draumaliðið. Þegar ég hugsa um það þá hefur enginn talað við mig síðan bókin kom út. Vonandi verður mér fyrirgefið um jólin,“ segir hann glettinn.
En er þessi bók þá einungis fyrir eldheitt áhugafólk um fótbolta?
„Alls ekki, þó hún sé kannski auðlesnari ef maður fylgist með boltanum. Hún er kannski meira fyrir yngri kynslóðina. Og þó, ég myndi segja að þessi bók sé fyrir börn á öllum aldri. Barnið kemur nefnilega upp í manni í fótbolta. Ég kvíði því ef ég hætti einhvern tíma að þjálfa fótbolta og vinna með ungu fólki. Þá fyrst færi ég að eldast hratt.“
Hér fyrir neðan má heyra Gumma Ben segja frá draumaliðinu og bókinni í útvarpsþættinum Brennslan.
Þessi kynning er unnin í samstarfi við Sögur útgáfu.