Birkir og Elvar skutu Aftureldingu og Selfoss áfram Anton Ingi Leifsson skrifar 13. desember 2018 21:16 Þessir tveir skoruðu sigurmörk sinna liða í kvöld. vísir/bára
Það var svakaleg dramatík í báðum leikjunum sem var að ljúka í 16-liða úrslitum Coca-Cola bikarsins í handbolta. Afturelding vann Hauka með minnsta mun á Ásvöllum, 25-24, eftir að hafa verið þremur mörkum yfir í hálfleik 14-11. Mosfellingar náðu mest sex marka forystu í síðari hálfleik en Haukarnir komu til baka og náðu að jafna. Sigurmarkið skoraði Birkir Benediktsson í þann mund sem flautan gall. Flautumark. Elvar Ásgeirsson og Birkir Benediktsson skoruðu báðir sjö mörk fyrir Aftureldingu en Orri Freyr Þorkelsson og Daníel Þór Inigason gerðu sex hvor fyrir heimamenn. Í Safamýrinni var einnig mikil spenna er Selfoss vann eins marks sigur á Fram, 32-31, eftir að Fram hafi verið tveimur mörkum yfir í hálfleik, 16-14. Sigurmarkið skoraði Elvar Örn Jónsson er innan við mínúta var eftir af leiknum af vítalínunni en Framarar voru afar ósáttir við síðustu sókn sína. Þar vildu þeir fá vítakast en fengu ekki. Markahæstir Framara voru þeir Andri Þór Helgason og Þorsteinn Gauti Hjálmarsson. Elvar Örn Jónsson fór á kostum í liði Selfoss og gerði tólf mörk.
Íslenski handboltinn Mest lesið Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Milner aftur til Liverpool Enski boltinn Dagskráin: Stórleikur á Englandi og bikarmeistarar í dalnum Sport VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Enski boltinn Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Coutinho og Neymar sameinaðir á ný Fótbolti „Get ekki beðið eftir leiknum í Frostaskjóli“ Íslenski boltinn Losa Leonard eftir refsinguna Körfubolti Missti eins árs gamlan son sinn Handbolti Leedsarar léku sér að Newcastle Enski boltinn Fleiri fréttir Missti eins árs gamlan son sinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Snorri Steinn valdi elítuhóp úr Olís-deildinni Valur rétti af skelfilega byrjun Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Sjá meira