Börðust við að halda hita á konunni niður fjallið Kristín Ólafsdóttir skrifar 30. desember 2018 18:20 Sjúkrabíll tók á móti konunni við komuna niður af fjallinu. Vísir/Vilhelm
Önnur konan sem slasaðist við göngu á Grundarhnjúki í Gerðafjalli við Eyjafjörð er kominn niður af fjallinu, að því er fram kemur í tilkynningu frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg. Konan er nú á leið á sjúkrahús á Akureyri. Björgunarsveitarmaður sem tók þátt í aðgerðum í fjallinu í dag segir líðan konunnar hafa verið stöðuga en kappkostað var við að halda á henni hita niður fjallið í miklum kulda.Sjá einnig: Báðar konurnar alvarlega slasaðar eftir hátt fall Ólafur Ólafsson hjá slysavarnarfélaginu Landsbjörg var á vettvangi við Grundarhnjúk í dag. Hann segir í samtali við Vísi að björgunin hafi gengið ágætlega miðað við aðstæður en slæmt veður var á svæðinu í dag. Töluverðan tíma hafi tekið að koma upp tryggingum og línum og þá var mikil hálka og snjór í hliðinni. Ólafur segir að konan, sem var á göngu í fjallinu ásamt tveimur konum, hafi strax verið flutt á sjúkrahús á Akureyri við komuna niður fjallið skömmu eftir klukkan 18 í kvöld. Hann segir að konan sé töluvert slösuð en líðan hennar hafi þó verið stöðug á leiðinni niður. „Hún fór strax á sjúkrahús, hún var stabíl en mjög kalt. Við vorum að berjast við kuldann, halda á henni hita,“ segir Ólafur. Þá segir hann konuna hafa verið með meðvitund þegar sjúkraflutningamenn tóku við henni.Frá vettvangi í Fnjóskadal.Mynd/LandsbjörgTvær konur slösuðust við gönguna í dag en ljóst er að þær féllu úr töluverðri hæð. Viðbragðsaðilar telja að þær hafi runnið um 200-300 metra niður fjallið. „Við áttum okkur ekki nákvæmlega á því hvaðan þær fóru af stað, skyggnið var orðið slæmt þegar við komum á staðinn,“ segir Ólafur. Ólafur hafði ekki fengið fregnir af líðan hinnar konunnar, sem flutt var alvarlega slösuð til Reykjavíkur með sjúkraflugi. Hún er talin meira slösuð en konan sem flutt var niður af fjallinu. Alls tóku aðgerðir björgunarsveita um fjóra klukkutíma en allir voru á leið af vettvangi nú á sjöunda tímanum.Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum frá viðbragðsaðila á vettvangi. Í fyrstu tilkynningum um slysið frá björgunarsveitum kom fram að slysið hefði orðið í Fnjóskadal. Grundarhnjúkur er hins vegar í Gerðafjalli við Eyjafjörð. Þetta hefur verið leiðrétt.
Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Sjá meira