Fjölmiðlar sem þykja hliðhollir Trump gagnrýndu hann harðlega og sögðu hann hafa lúffað.
Reiði þeirra leit dagsins ljós nánast samstundis og Trump tilkynnti að alríkisstofnanirnar yrðu opnaðar á nýjan leik. Auk þeirra sem lýstu yfir reiði sinni voru margir sem lýstu yfir stuðningi sínum við Trump og aðrir sem sögðu ákvörðun hans vera lið í einhverskonar áætlun. Hann myndi án efa tryggja byggingu múrsins. Meðal þeirra var Sean Hannity, þáttastjórnandi Fox News og náinn vinur og ráðgjafi Trump.
Good news for George Herbert Walker Bush: As of today, he is no longer the biggest wimp ever to serve as President of the United States.
— Ann Coulter (@AnnCoulter) January 25, 2019
Miklar tafir mynduðust á nokkrum af stærstu flugvöllum Bandaríkjanna þar sem flugumferðarstjórnendur, sem höfðu verið að mæta til vinnu án þess að fá greitt, voru að hringja sig inn veika. Þá lýstu forsvarsmenn nokkra af stærstu fyrirtækjum Bandaríkjanna því yfir að lokun stofnananna myndi hafa mikil áhrif á efnahag Bandaríkjanna ef hún myndi vara mikið lengur.
Varað var við því að ferðamannaiðnaðurinn væri farinn að þjást vegna lokunarinnar og þúsundir starfsmanna Skattstofu Bandaríkjanna voru hættir að mæta í vinnuna.
Þá voru þingmenn Repúblikanaflokksins farnir að lýsa yfir andstöðu við lokunina. Frumvarp Demókrataflokksins um að opna stofnanirnar án þess að veita fjármagni til byggingar múrsins fékk fleiri atkvæði í öldungadeildinni en sambærilegt frumvarp Repúblikanaflokksins sem innihélt fjárveitingu til múrsins, þó Repúblikanar séu með meirihluta í öldungadeildinni.
Sjá einnig: Demókratar í góðri stöðu eftir afhroð Repúblikanaflokksins
Vandi Trump snerist einnig um það að hans helstu stuðningsmenn vildu múrinn og sögðu annað ekki koma til greina. Almennir og óháðir kjósendur voru hins vegar ekki á þeim nótum. Óvinsældir Trump hafa aukist til muna á undanförnum vikum og skoðanakannanir sýna að mun fleiri kjósendur kenndu Trump og Repúblikönum um lokunina en Demókrötum.
Fjárveitingar til umræddra stofnanna duga þó eingöngu til 15. febrúar og ef Demókaratar og Repúblikanar finna ekki lausn á deilunni um múrinn fyrir þann tíma er útlit fyrir að stofnununum verði lokað að nýja eða að Trump lýsi yfir neyðarástandi. Þá gæti Trump sótt sér fé í neyðarsjóði hersins.
Þeir sjóðir eru meðal annars ætlaðir til viðbragða við náttúruhamförum og uppbyggingu innviða.
Grípi Trump til þessa aðgerða munu Demókratar án efa höfða mál til að reyna að stöðva hann en óljóst þykir hvort forsetinn hafi í raun vald til þessa. Landeigendur við landamærin hafa sömuleiðis lýst því yfir að þeir séu að undirbúa málaferli.
Sjá einnig: Fallegi múrinn sem varð að girðingu
Eins og áður segir hafa Repúblikanar og Demókratar þrjár vikur til að komast að samkomulagi um landamærin. Leiðtogar Demókrataflokksins hafa sagst vongóðir um að hægt verði að komast að samkomulagi. Hingað til hafa þeir þó eingöngu viljað auka fjárveitingar til landamæranna en þær fara í aukið eftirlit, endurbætur á tólum og fleiri starfsmenn. Ekki í múrinn.
Trump hefur ítrekað sagt að hann vilji múr og ekkert annað komi til greina. Þingmenn Repúblikanaflokksins sem miðlar úti hafa rætt við segja alls ekki öruggt að samkomulag náist. Það stefnir því í aðra lokun eða neyðarástandsyfirlýsingu og áralöng málaferli eftir þrjár vikur.
Einn fyrrverandi starfsmaður Trump í Hvíta húsinu var þó ekki á þeirri skoðun við Politico.
„Hann á eftir að lúffa aftur eftir þrjár vikur. Demókratar hafa kverkatak á Trump.“