Kenna hvor öðrum um umdeilt atvik Samúel Karl Ólason skrifar 21. janúar 2019 11:00 Nick Sandmann og Nathan Philips á tröppum minnisvarða Abraham Lincoln.
Táningurinn sem hefur orðið andlit umdeilds atviks í Washington DC um helgina, segist ekki hafa ögrað eða lítilsvirt aldraðan mann af indjánaættum. Í tilkynningu segir Nick Sandmann að hann hafi ekki talað við eða átt í nokkrum samskiptum við Nathan Philips, sem hafi gengið upp að sér með trommu og hann hafi eingöngu reynt að draga úr spennu á milli fylkinga. Bæði Sandmann og Philips segjast hafa reynt að draga úr spennu sem hafi myndast milli þriggja fylkinga á svæðinu. Sandmann tilheyrði hópi ungmenna úr kaþólskum drengjaskóla frá Kentucky og voru þeir í höfuðborginni til að mótmæla fóstureyðingum. Philips var í hópi bandarískra frumbyggja sem voru í árlegri kröfugöngu. Þriðji hópurinn á svæðinu tilheyrði Hebrew Israelites, sem er öfgafull fylking þeldökkra aðila sem telja sig afkomendur gyðinga úr biblíunni og sérvalda þjóð guðs. Minnst fimm meðlimir fylkingarinnar voru á svæðinu. Þeir birtu langt myndband á Youtube sem fangaði hið umdeilda atvik og varpar frekara ljósi á það.Just in: Statement of Nick Sandmann, Covington Catholic High School junior, about the event at the Lincoln Memorial: pic.twitter.com/PkuMh2cVZM — Jake Tapper (@jaketapper) January 20, 2019 Allar fylkingarnar saka hinar um dónaskap og leiðindi en myndbönd gera ljóst að meðlimir Hebrew Israelites höguðu sér verst. Þeir munu hafa byrjað á því að deila við frumbyggjanna áður en þeir sneru sér að táningunum.Sandmann segir hann og vini sína hafa verið kallaða rasista og afsprengi sifjaspells, svo eitthvað sé nefnt. Meðal þess sem meðlimir Hebrew Israelites gerðu var að veitast að tveimur þeldökkum nemendum Covington skólans og kalla þá meðal annars „negra“. Myndbönd styðja þá frásögn. Vitni sem Washington Post ræddi við segir þó undarlegt að enginn fullorðinn sem var með drengjunum reyndi að koma til hjálpar og taka stjórn á hópnum eða koma þeim til varnar. Sandmann segir nemendur hafa fengið leyfi umsjónarmanna til að svara dónaskapnum með söngvum skólans. Það var einn þeirra söngva sem leiddi til þess að Philips og aðrir frumbyggjar gengu að skóladrengjunum. Philips og félagar segjast hafa séð drengina dansa einhverskonar útgáfu af Haka-dansi, sem er dans frumbyggja Nýja Sjálands. Þeim fannst drengirnir vera að hæðast að þeim dansi. Í fyrstu gengu Philips og félagar hans á milli drengjanna og hinnar fylkingarinnar en Philips segist hafa ætlað sér að ganga upp þrep minnisvarða Abraham Lincoln, því þar hafi einhverjir vinir hans verið, en þar hafi einn nemandi staðið í vegi hans og neitað að færa sig. Það hafi verið Sandmann. Þá segir Philips að aðrir nemendur hafi talað illa um hann og aðra frumbyggja Bandaríkjanna. Sandmann segir það ekki rétt. Hann segir Philips hafa gengið upp að sér sérstaklega. Þá hafi hann ekki heyrt neinn af drengjunum segja neitt slæmt og að frumbyggjarnir hafi þess í stað kallað á þá að þeir ættu meðal annars að fara aftur til Evrópu. AP segir þó að myndbönd sýni drengina í það minnst hlæja að Philips og einhverja þeirra hæðast að honum. Aðspurður af hverju hann reyndi ekki að fara fram hjá honum segir Philips að hafi séð Sandmann sem meira en táningsdreng. Hann hafi séð hann sem einhvers konar táknmynd þess sem frumbyggjar Bandaríkjanna hafa þurft að þola frá hvítum innflytjendum Bandaríkjanna. „Ég var að hugsa um 500 ára þjóðarmorð í þessu ríki, það sem fólkið þitt hefur gert,“ sagði hann við blaðamann Washington Post. „Þið sjáið mig ekki einu sinni sem manneskju.“ Hann kennir drengjunum, umsjónarmönnum þeirra og meðlimum Hebrew Israelites um spennuna á svæðinu.Í áðurnefndri yfirlýsingu segist Sandmann ekki skilja af hverju báðar hinar fylkingarnar hafi nálgast hann og skólafélaga hans. Þeir hafi eingöngu verið þarna til að bíða eftir rútu. Þá segist hann ekki bera neinn illvilja til Philips. Hann virði rétt hans til mótmæla en telur að hann ætti að hugsa sinn gang varðandi persónulegt rými annarra. Sandmann segir einnig að honum og fjölskyldu hans hafi borist morðhótanir vegna atviksins og hann hafi verið kallaður öllum illum nöfnum. Hvað sem segja má um þetta tiltekna atvik þykir það þó til marks um aðstæðurnar og deilurnar í Bandaríkjunum og jafnvel víðar. Viðbrögðin á samfélagsmiðlum og víðar voru yfirgengileg og virðast hafa beinst gegn röngum aðilum, þar sem meðlimir Hebrew Israelites byggðu vísvitandi upp spennu og veittust að hópi ungra drengja með dónaskap og leiðindum.
Bandaríkin Mest lesið Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Rukka erlenda nemendur um milljónir Innlent Fleiri fréttir Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Sjá meira