Nýtt par á Reykjavík Meat Reykjavík Meat kynnir 8. febrúar 2019 11:00 Á Reykjavík Meat er mikið lagt upp úr eðalsteikum og sérvöldu víni með. Sérstakur matseðill í boði um helgina. Vilhelm
Veitingastaðurinn Reykjavík Meat hefur á skömmum tíma stimplað sig inn í matarflóru borgarinnar en staðurinn var opnaður í september síðastliðinn. Sérvaldar steikur og sérvalin vín eru aðalsmerki staðarins enda meyr steik gott rauðvín og óaðskiljanleg tvenna í huga margra matgæðinga. Starfsfólk Reykjavík Meat leggur þó ekki einungis metnað í að para léttvín með mat heldur hefur það tekið upp á því að para saman mat og vískí.Almar Yngvi Garðarsson, veitingastjóri Reykjavík Meat.„Þetta er nýjung á Íslandi. Það er vel þekkt úti í heimi að para viskí með góðri steik en ekki endilega svo þekkt að para það með öðrum réttum, forréttum og eftirréttum. Við prófuðum að setja saman slíkan seðil, fjögurra rétta, enda leggjum við mjög mikið upp úr góðum vínum og erum ávallt með vínpörun með öllum okkar mat,“ segir Almar Yngvi Garðarsson, veitingastjóri Reykjavík Meat. Í dag og fram á sunnudag gefst gestum tækifæri á að upplifa hvernig til tókst og panta fjögurra rétta viskí-matseðil á 6.950 krónur.Almar segir kúnst að para saman vín og mat og galdurinn felist í því að hvort vegi hitt upp, að vínið dragi fram bragðið í matnum og öfugt. Þegar vel takist til sé upplifunin einstök „Viskípörunin kemur skemmtilega á óvart. Ég var sjálfur skeptískur og átti von á að drykkurinn tæki yfir bragðið af matnum en þvert á móti opnast alveg nýr bragðheimur. Það liggja miklar pælingar á bak við seðilinn hjá okkur og við notum einnig viskí í réttina sjálfa. Þannig fáum við gott jafnvægi á milli,“ segir Almar og bætir við að viskímenningin blómstri á Íslandi.„Við Íslendingar erum að þroskast í allri vínmenningu og vískí er þar engin undantekning. Fólk fær sér viskí í meira mæli sem fordrykk í staðinn fyrir kokteil og kann einnig að meta reykt bragð,“ segir Almar. Hann á von á að fleiri tilraunir verði gerðar með vínpörun á Reykjavík Meat í framhaldinu enda sé talsverður spenningur fyrir viskíseðlinum. „Það er þegar orðið þétt bókað og bara örfá sæti laus um helgina. Ég býst sterklega við því að við gerum þetta aftur og pörum þá kannski aðra tegund. Við erum dugleg að búa til skemmtileg tilboð og viljum geta tekið á móti öllum. Við erum steikhús í gegn og Sashi steikurnar okkar hafa vakið athygli en við bjóðum einnig fisk, grænmetisrétti og vegan. Á sunnudagskvöldum erum við með steikarveislur sem hafa mælst afar vel fyrir. Viðtökurnar hafa verið frábærar alveg frá því við opnuðum staðinn. Enda lögðum við mikla vinnu í hann og til dæmis var Stefán Magnússon, hönnuður staðarins, tvö ár að upphugsa öll smáatriði. Staðurinn er frekar dökkur og ég vil meina að því dekkri sem veitingastaður er því betri. Það er svo kósý og notalegt hérna inni að fólk steingleymir að líta á klukkuna.“Nánar á www.rvkmeat.isÞessi kynning er unnin í samstarfi við Reykjavík Meat
Matur Mest lesið Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Lífið Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Gagnrýni Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Lífið Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Lífið Hvað veistu um... Mean Girls? Lífið Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bíó og sjónvarp Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Bíó og sjónvarp Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Fleiri fréttir „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Aldur er ekki hindrun heldur nýtt skeið í lífinu „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu „Nú skaltu bara fara í pottinn, Pottakóngur!“ Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Próteinskammtur alltaf með í töskunni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni 1991 var eitt stærsta ár tónlistarsögunnar Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Nýr sólarhringsstaður á Miklubraut: Sbarro, kaffi og verslun allan sólarhringinn Meira til baka með Takk í Bónus og Hagkaup Smellir George Michael lifna við á tónleikum í Hörpu og Hofi Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Beint flug til Portó Daría fagnar tíu árum – úr lítilli snyrtivöruverslun í lífsstílsverslun Sjá meira