Skoðun

Hvað gaf frúin í Stjórnarráðinu þér?

Valgerður Árnadóttir skrifar
Hvað gaf frúin í Stjórnarráðinu þér?

  1. Hálft mánaðarkort í strætó
  2. Rúmlega hálfan tank af bensíni
  3. Einn innkaupapoka í Bónus
  4. Efri eða neðri part af regnfötum á eitt af börnum mínum
  5. Einn skó
  6. Eina vodkaflösku til að drekkja sorgum mínum
ATH: Þú getur aðeins valið eitt af ofangreindum atriðum, bannað að segja svartur, hvítur, já og nei.

Ríkisstjórn Íslands settist í gær niður með formönnum ASÍ til að semja um kröfur vinnandi fólks og bauð fólki sem er á lágmarkslaunum  6760,- kr í skattaafslátt á mánuði frá og með næstu áramótum.

Vil­hjálmur Birgis­son varaformaður ASÍ gekk út af fundi enda er mönnum ekki stætt að sitja undir vanvirðingu af þessu tagi.

Frúin í Stjórnarráðinu hefur hér með svikið flest öll sín kosningaloforð og ætti að segja af sér.

Úr atvinnustefnu Vinstri grænna:

  1. Atvinnustefna Vinstri grænna byggist á sanngjörnum kjörum, réttlátu skattkerfi, öflugri menntun, samvinnu, sjálfbærni, jöfnuði og félagslegu réttlæti. Hún skapar tækifæri til uppbyggingar um allt land.
  2. Vinstri græn standa með launafólki og stéttarfélögum þeirra í baráttunni fyrir réttindum og bættum kjörum.
  3. Laun þurfa að lágmarki að duga fyrir grunnframfærslu, vinnuvikan á að styttast án kjaraskerðingar og upphæðir almannatrygginga að fylgja launaþróun. Tryggja þarf þeim sem hafa fallið út af vinnumarkaði starfsendurhæfingu við hæfi í samstarfi við sveitarfélög.
  4. Launamuni kynjanna þarf að útrýma nú þegar og jafna kjör á milli stétta, sér í lagi þar sem eitt kyn er í miklum meirihluta.
  5. Koma þarf í veg fyrir mansal, misnotkun á vinnuafli og félagslegt undirboð með samstarfi við verkalýðshreyfinguna, öflugra eftirliti með vinnumarkaðnum og ríkulegum framlögum til mansalsáætlunar stjórnvalda. Innleiða þarf keðjuábyrgð í lög þannig að ekki sé hægt að vísa allri ábyrgð á undirverktaka.
  6. Skattkerfið ber að nýta til kjarajöfnunar. Tryggja þarf fjölþrepa skattkerfi sem færir skattbyrðina af lægri launum yfir á hærri laun, óháð því hvort um er að ræða launatekjur eða fjármagnstekjur. Berjast þarf gegn hvers kyns skattsvikum og svartri atvinnustarfsemi enda sviptir hún launafólk því öryggi og þeim réttindum sem stéttarfélögin veita.
  7. Sterkt velferðarkerfi sem býður menntun og heilbrigðisþjónustu notendum að kostnaðarlausu.
Kröfur stéttarfélaganna gagnvart stjórnvöldum í núverandi kjarasamningum standast stefnu Vinstri grænna nánast í einu og öllu: 

  1. Þjóðarátak í húsnæðismálum
  2. Skattfrjáls lægstu laun
  3. Hærri skattur á arðgreiðslur og aðrar fjármagnstekjur
  4. Sömu kjarabætur fyrir öryrkja og aldraða eins og launafólk, og færri skerðingar
  5. Afnám verðtryggingar
  6. Lengra fæðingarorlof, til að brúa bilið fram að leikskóla
  7. Opinber heilbrigðisþjónusta, öllum aðgengileg
Hvernig stendur því á því að þau fagni ekki þessum kröfum og beiti sér fyrir því að koma þeim á?

Hvernig stendur á því að þau leyfi sér að sýna fólkinu sem heldur samfélaginu uppi þá vanvirðingu sem því var sýnt í dag?

Hér má lesa kröfugerð Eflingar.

Hér má lesa stefnu VG í atvinnumálum og stefnu VG í vinnumarkaðs- og verkalýðsmálum.

Höfundur er starfsmaður Eflingar.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×