Vorið er komið í Apríl skóm Apríl skór kynna 14. mars 2019 08:30 Matthildur Pétursdóttir, stendur vaktina í Apríl skóm á Garðatorgi. Vorlínan er komin upp úr kössunum. Vilhelm
Apríl skór er skemmtileg skóverslun á Garðatorgi. Þar er vorið komið og allar hillur fullar af litríkum skóm frá flottum merkjum. „Vorvörurnar streyma inn hjá okkur þessa dagana og við vorum að fá mikið af léttum skóm í allskonar litum. Við leggjum áherslu á gæði og okkar sérstaða liggur í „öðruvísi“ merkjum og topp þjónustu,“ segir Tinna Rún Davíðsdóttir, eigandi skóverslunarinnar Apríl skór.Tinna Rún Davíðsdóttir, eigandi skóverslunarinnar Apríl skór.Hágæða merki og hressir litir„Við erum með níu merki í versluninni, meðal annars tískumerki eins og Free people og ástralska merkið SENSO sem er nýtt á Íslandi og gaman að geta boðið upp á. Við erum sérstaklega stolt af sænska merkinu Ten Points sem er klassískt hágæða merki og höfðar til allra. Það er eitt vinsælasta merkið hér í búðinni,“ segir Tinna. Íslendingar séu óhræddir við að kaupa sér litríka skó. „Fólk leggur upp úr gæðum og klassískum sniðum sem standast tímans tönn en er gjarnan í hressum litum."„Vandaðir leðurskór eru umhverfisvænir þar sem þeir endast árum saman og ekki þarf stöðugt að kaupa nýja. Skórnir frá Ten Points er stílhreinir en samt alltaf eitthvað sem poppar þá upp. Til viðbótar við skóna erum við einnig með fylgihluti í versluninni eins og sokka og leðurhanska. Við höfum einnig verið með leðurtöskur og stefnum á að bæta fleiru við.“ Senda frítt heim að dyrumApríl skór er tiltölulega ný af nálinni en verslunin var opnuð í desember 2017 og hlaut strax góðar viðtökur. Fljótlega bættist vefverslunin aprilskor.is við. „Okkur var vel tekið strax frá fyrsta degi og eftir að við opnuðum vefverslunina í maí á síðasta ári bættist landsbyggðin við viðskiptavinahópinn. Við sendum allar pantanir yfir 10.000 krónum frítt heim að dyrum,“ segir Tinna.Garðatorgið í uppbyggingu„Þessar góðu viðtökur eru sérstaklega skemmtilegar þar sem við erum ekki staðsett í miðbæ Reykjavíkur. Garðatorgið er í mikilli uppbyggingu. Hér er til dæmis Mathús Garðabæjar sem hefur slegið í gegn og blómabúð, húsgagnaverslanir og verslunin Ilse Jacobsen, Lífsstílsbúðin Maí og þá er hér japanskur „fushion“ veitingastaður. Hér er líka Hönnunarsafn Íslands staðsett og á döfinni er að opna Bónusverslun á Garðatorgi. Það er því vel þess virði að gera sér ferð hingað til okkar. Garðbæingar kíkja til dæmis gjarnan hingað í stað þess að fara í Smáralind,“ segir Tinna.Stundar nám í textílhönnun„Það var hálfgerð tilviljun að ég fór út í verslunarrekstur. Ég var innkaupastjóri fyrir verslanir í mörg ár og sló til þegar ég var fengin í að opna Apríl skó í félagi við aðra. Í framhaldinu tók ég svo alveg við rekstrinum. Ég hef verið í námi í textílhönnun síðustu þrjú árin og er að klára námið í Bournemouth næsta sumar, frænka mín, Matthildur Edda Pétursdóttir, stendur vaktina í búðinni. Ég útskrifast í sumar og stefni á að flytja heim. Ætli ég sökkvi mér ekki bara í vinnu, ég gæti til dæmis vel hugsað mér að tvinna textílhönnunina við skóna,“ segir Tinna. Hér fyrir neðan má sjá fleiri myndir af úrvali verslunarinnar.Þessi kynning er unnin í samstarfi við Apríl skó.
Tíska og hönnun Mest lesið Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Lífið Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Gagnrýni Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Lífið Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Lífið Hvað veistu um... Mean Girls? Lífið Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bíó og sjónvarp Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Matthías Már með krabbamein Lífið Fleiri fréttir „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Aldur er ekki hindrun heldur nýtt skeið í lífinu „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu „Nú skaltu bara fara í pottinn, Pottakóngur!“ Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Próteinskammtur alltaf með í töskunni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni 1991 var eitt stærsta ár tónlistarsögunnar Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Nýr sólarhringsstaður á Miklubraut: Sbarro, kaffi og verslun allan sólarhringinn Meira til baka með Takk í Bónus og Hagkaup Smellir George Michael lifna við á tónleikum í Hörpu og Hofi Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Beint flug til Portó Daría fagnar tíu árum – úr lítilli snyrtivöruverslun í lífsstílsverslun Sjá meira