Albert kom af bekknum og skoraði tvö í svekkjandi tapi Anton Ingi Leifsson skrifar 13. apríl 2019 18:22 Albert fagnar fyrra markinu. vísir/getty
Albert Guðmundsson skoraði tvö mörk er AZ Alkmaar tapaði 3-2 gegn ADO Den Haag í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Erik Falkenburg kom Den Haag yfir á 32. mínútu og á annarri mínútu síðari hálfleiks var Falkenberg aftur á ferðinni er hann tvöfaldaði forystu gestanna frá Haag. Albert kom af bekknum á 66. mínútu og þakkaði heldur betur traustið en hann hefur ekki verið mikið notaður að undanförnu. Albert minnkaði muninn fimm mínútum fyrir leikslok og er fram var komið í uppbótartíma var KR-ingurinn uppaldi aftur á ferðinni er hann jafnaði metin. Flestir héldu að leikurinn myndi enda með 2-2 jafntefli en Sharaldo Becker skoraði sigurmarkið rétt fyrir lokaflautið. Grátlegt 3-2 tap AZ en frábær innkoma Alberts.90+1. GOAL! De verdiende gelijkmaker komt van Gudmundsson: 2-2.#azadopic.twitter.com/kfQkdzUbi2 — AZ (@AZAlkmaar) April 13, 2019 AZ er í fjórða sæti deildarinnar með 52 stig og er áfram stigi á eftir Feyenoord sem er í þriðja sætinu. Den Haag er í ellefta sæti deildarinnar. Elías Már Ómarsson var ónotaður varamaður og Mikael Anderson var skipt inná á 62. mínútu er Excelsior tapaði 6-2 fyrir Ajax. Ajax á toppnum en Excelsior í sautjánda sæti deildarinnar. Böðvar Böðvarsson var í vinstri bakverðinum hjá Jagiellonia sem vann 2-0 útisigur á Lech Poznan í kvöld í pólsku úrvalsdeildinni. Jagiellonia er í sjötta sæti deildarinnar og er komið í bikarúrslit.
Fótbolti Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira