Íslenski boltinn

Þjálfari KR fór í markið og hélt hreinu

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Bojana Besic hér lengst til vinstri ásamt Guðmundu Brynju Óladóttur, leikmanni KR, og Rögnu Lóu Stefánsdóttur, meðþjálfara sínum.
Bojana Besic hér lengst til vinstri ásamt Guðmundu Brynju Óladóttur, leikmanni KR, og Rögnu Lóu Stefánsdóttur, meðþjálfara sínum. KR
KR vann 2-0 sigur á FH í lokaleik B-deildar Lengjubikars kvenna sem fram fór á gervigrasvelli KR-inga í gærkvöldi þar sem þær Hugrún Lilja Ólafsdóttir og Betsy Hassett voru á skotskónum.

Í marki KR stóð þjálfari liðsins, hin serbneska Bojana Besic, en aðalmarkvörður KR, Ingibjörg Valgeirsdóttir, var fjarri góðu gamni.

Bojana stóð vaktina vel og hélt marki sínu hreinu en þetta var í fyrsta skiptið í vetur sem hennar lið heldur hreinu í Lengjubikarnum. KR hafnaði í 3.sæti B-deildarinnar en Fylkiskonur unnu deildina örugglega með fullt hús stiga.

Bojana er 39 ára gömul og lék á árum áður með Þór/KA en þá oftast í stöðu varnarmanns.

KR-konur hefja leik í Pepsi Max deildinni fimmtudaginn 2.maí næstkomandi þegar þær heimsækja HK/Víking í Kórinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×