Stundum er skegg keisarans fast við andlitið á honum Kári Stefánsson skrifar 24. apríl 2019 07:00 Albert Einstein var tuttugu og sex ára gamall pjakkur og vann á einkaleyfaskrifstofu í Bern í Sviss árið 1905 þegar hann birti fjórar vísindagreinar sem hver um sig breytti heimsmynd okkar. Hann er mesti vísindamaður allra tíma, langmesti. Þegar við vísindamenn lendum í oflæti þurfum við ekki annað en að segja Abert Einstein upphátt og þá verður jafnvel þeim forhertasta á meðal okkar ljóst að í samanburðinum er hann eins og lítil steinvala í Kollafjarðarfjörunni við hliðina á Esjunni. Ein af vísindagreinunum sem Einstein birti vorið góða fjallaði um sambandið milli efnis og orku sem hann lýsti með frægustu jöfnu allra tíma E = mc2. Hann sýndi fram á að það má líta á alla hluti sem einhvers konar form af orku eða að í öllum hlutum búi orka þótt það sé auðveldara leysa hana úr læðingi í sumum hlutum en öðrum. Ekki veit ég hvers vegna mér dettur þetta í hug í hvert skipti sem ég heyri á þriðja orkupakkann minnst, nema ef vera skyldi vegna barnslegrar löngunar minnar til þess að verða vitni að því að við Íslendingar sýnum þannig hugvitsemi við nýtingu á orku sem við sækjum í fallvötn að hún beri þess merki að við séum af sömu dýrategund og Einstein. Umræðan um orkupakkann er því miður farin að hljóma eins og frekar innihaldslítil deila um keisarans skegg í stað þess að vera okkur ástæða til þess að endurskoða afstöðu til þess hvernig við nýtum þá raforku sem er sameign þjóðarinnar. Hér er ein skoðun á því hvernig við ættum að gera það: Það bárust um daginn þær fréttir af aðalfundi Landsvirkjunar að afkoma hennar hefði verið betri árið 2018 en í nokkurn annan tíma og þrátt fyrir það ætlaði hún að hækka gjaldskrá sína um þrjátíu prósent? Landsvirkjun er í eigu ríkisins þannig að tekjur hennar umfram rekstrarkostnað eru einfaldlega óbein skattlagning. Raforka sem er seld til málmbræðslna í eigu erlendra fyrirtækja er verðlögð samkvæmt samningum til margra ára þannig að ekki er líklegt að þær gjaldi í bráð þessa aukna fjárþorsta Landsvirkjunar. Það sama verður ekki sagt um íslensk fyrirtæki og heimilin í landinu. Útsöluverð á rafmagni var notað til þess að sannfæra erlend fyrirtæki um að byggja málmbræðslur í landinu á þeim tíma þegar við sáum ekki vænni kost til þess að nýta orkuna okkur til framfærslu. Nú held ég að sé kominn tími á að við horfum til þess möguleika að nýta auðveldan aðgang að vistvænni orku til þess að ýta undir annars konar og meira aðlaðandi uppbyggingu. Við eigum að hafa raforkuna á framleiðsluverði og ekki krónu umfram það til þess að lækka kostnað heimilanna og hlúa að fjölbreytni í íslensku atvinnulífi. Eitt dæmi um möguleika sem lægra rafmagnsverð gæti skapað liggur í landbúnaði. Í dag flytjum við inn meiri hlutann af því grænmeti sem við neytum frá löndum sem rækta grænmeti í gróðurhúsum. Mjög stór hluti af rekstrarkostnaði gróðurhúsa fer í rafmagn. Við eigum að sjá til þess að við séum samkeppnishæf í rekstri gróðurhúsa svo við getum ræktað okkar grænmeti sjálf, þannig gætt íslenskan landbúnað nýju lífi og aukið sjálfbærni mannlífs á Íslandi. Annað dæmi liggur í gagnaverum sem eru mjög orkukræf. Gagnaverin og þjónusta og tækniþróun í kringum þau gætu, ef rétt er haldið á spilunum, gert upplýsingatækni að raunverulegum stóriðnaði í landinu í stað þess að vera sífellt einhvers konar hérumbil grein. Til þess þurfa gagnaverin að eiga aðgang að miklu ódýrari orku. Það væri líka sniðugt ef Alþingi setti lög til að tryggja öryggi gagna í gagnaverum til dæmis með því að lýsa gagnaverin helg vé, sem enginn mætti sækja í gegn vilja þeirra sem gögnin eiga, hvorki hið opinbera á Íslandi né fulltrúar erlendra ríkja. En það er önnur saga. Það sem skiptir máli þegar við ræðum um lagasetningu sem lýtur að örlögum orku sem við virkjum úr íslenskri náttúru er að hún gegnir ekki bara því hlutverki að lýsa okkur í myrkri og hlýja í kulda, heldur býr hún líka til möguleika á því að skapa og framkvæma. Ísland er enn þann dag í dag harðbýlt og fjarri góðu gamni þannig að við eigum oft undir högg að sækja í samkeppni við atvinnuvegi annarra þjóða. Vistvæna orkan okkar ætti að geta jafnað samkeppnisaðstöðuna á mörgum sviðum ef hún væri skynsamlega verðlögð. Landsvirkjun er í eigu þjóðarinnar en hagar sér því miður eins og það sé hennar aðalmarkmið að fá sem hæst verð fyrir rafmagnið, án tillits til þess hvernig það bitnar á atvinnuþróun í landinu. Ein af þeim aðferðum sem hún virðist vilja nota til þess að hækka verðið er að selja rafmagn í gegnum sæstreng til annarra landa. Það er lítill vafi á því að það væri hægt að fá hærra verð fyrir rafmagnið annars staðar sem myndi leiða til þess að verið hækkaði hér og samkeppnisaðstaða okkar yrði öll önnur og verri. Við komum aldrei til með að geta lifað af því einu saman að selja rafmagn, en við gætum svo sannarlega lifað mun betra lífi með því að nýta það til að bæta samkeppnisaðstöðu okkar á hinum ýmsu sviðum. Mín afstæðiskenning sem lýtur að verði á rafmagni er svona: Frá sjónarhóli Landsvirkjunar sem sjálfstæðs fyrirtækis á að selja rafmagn eins dýrt og mögulegt er. Frá sjónarhóli íslenskrar þjóðar á Landsvirkjun að selja rafmagn eins ódýrt og hægt er. Landsvirkjun er ekki sjálfstætt fyrirtæki heldur eign þjóðarinnar. Hagsmunir þjóðarinnar eiga að ráða og það er ekkert afstætt við það. Þegar maður veltir fyrir sér orkupakkanum þriðja í tengslum við hugmyndir um það hvernig orkan sem við virkjum úr íslenskri náttúru sé nýtt og mikilvægi hennar fyrir framtíð þjóðarinnar, þá held ég að við ættum láta hann vera þótt ekki sé nema vegna þeirra skilaboða sem samþykkt hans myndi senda börnum okkar og barnabörnum. En ef Alþingi samþykkir orkupakkann þriðja held ég að við lifum það svo sem af vegna þess að við erum öll, 350 þúsund, orðin atvinnumenn og konur í því að takast á við þau bjánasköp kjörinna fulltrúa þjóðarinnar sem þeir fremja gjarnan í nágrenni Austurvallar, þau afdrifaríku inni í hlöðnu steinhúsi sem blasir við Jóni Sigurðssyni, þau sem eru næstum takmarkalaust eymdarleg í depurð sinni í öðrum húsum þar í nágrenninu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Kári Stefánsson Mest lesið Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Sjá meira
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar