Þrjú íslensk mörk á sjö mínútum í Noregi Anton Ingi Leifsson skrifar 22. apríl 2019 17:50 Hólmbert skorar á síðustu leiktíð. vísir/getty
Þrjú íslensk mörk litu dagsins ljós í norsku B-deildinni er Álasund vann 4-2 sigur á Skeid í dag og Hjörtur Hermannsson var í sigurliði í Danmörku. Aron Elís Þrándarson skoraði fyrsta markið á 17. mínútu og fjórum mínútum síðar tvöfaldaði Daníel Leó Grétarsson. Hólmbert Aron Friðjónsson var síðasti Íslendingurinn á blað á 24. mínútu. Leiknum lauk að endingu með 4-2 sigri Álasund sem er með tíu stig eftir fyrstu fjóra leikina í deildinni. Daníel Leó og Aron Elís spiluðu allan leikinn en Hólmbert var tekinn af velli í hálfleik. Aron Sigurðarson spilaði allan leikinn og Kristján Flóki Finnbogason síðustu tuttugu mínúturnar er Start tapaði 2-0 fyrir Sandes á útivelli. Guðmundur Andri Tryggvason var ónotaður varamaður en Jóhannes Harðarson er stjóri Start sem er með sex stig eftir fjóra leiki. Hjörtur Hermannsson stóð vaktina vel er Bröndby vann 2-1 útisigur á Midtjylland. Bröndby komst tvívegis yfir í leiknum og Bröndby er í fimmta sætinu í meistaraspilinu. Þeir eru þó einungis tveimur stigum frá þriðja sætinu en Midtjylland er í öðru sætinu. Viðar Ari Jónsson spilaði síðustu þrjár mínúturnar er Sandefjord gerði 3-3 jafntefli við við Tromsdalen á útivelli en Emil Pálsson er enn á meiðslalistanum. Sandefjord er í öðru sætinu með átta stig.
Fótbolti Mest lesið Jorge Messi látinn Fótbolti 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Golf Infantino hafnar ásökunum um þöggunargreiðslu til meintrar ástkonu Fótbolti Framherjaleit Breiðabliks lokið Íslenski boltinn Martraðardvöl Blika: „Tekið á andlega og líkamlega“ Íslenski boltinn Íþróttamanni ársins leið ekki eins og íþróttamanni Sport Drakk síðast vatn í drykkjarhléi úrslitaleiks HM Fótbolti Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Enski boltinn Grípa í taumana eftir banaslys Enski boltinn Reynir á kylfinga með öðrum hætti á Íslandsmótinu í dag Golf Fleiri fréttir Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Guðrún úr leik eftir tap fyrir Juventus Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Flottur sigur Íslendingaliðsins í fyrsta leik Tap og Hlín fer í Evrópubikarinn Diljá aftur með tvö og áfram í Meistaradeild Framherjaleit Breiðabliks lokið Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Þrótti mistókst að fara á toppinn Drakk síðast vatn í drykkjarhléi úrslitaleiks HM Sjö mörk í stórsigri Íslendingaliðsins Grípa í taumana eftir banaslys Lutu í lægra haldi gegn toppliðinu Íslendingaliðið áfram í Evrópubikarinn Erlingur Agnars í FH Jorge Messi látinn Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Sjáðu fernu Emmu og gífurlega mikilvægt mark Vals Martraðardvöl Blika: „Tekið á andlega og líkamlega“ Infantino hafnar ásökunum um þöggunargreiðslu til meintrar ástkonu Nuddari Maradona grátklökkur í réttarsalnum Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Argentína mun ekki setja pressu á Lionel Messi Ensk landsliðskona vill sniðganga HM Liverpool fær miðvörð Barcelona á láni Haaland tilnefndur til tónlistarverðlauna í Noregi Afturelding á toppinn eftir stórsigur og tap Fylkis Uppgjörið: Valur-Víkingur 1-0 | Fyrsti sigur Vals síðan 25. maí „Var bara eitthvað með hann ógeðslega lengi og svo bara skoraði ég“ Sjá meira