Pogba: Tvö tímabil í röð án bikars er ekki gott Anton Ingi Leifsson skrifar 23. apríl 2019 07:00 Pogba í baráttunni við Gylfa í leiknum á sunnudaginn. vísir/getty
Paul Pogba, miðjumaður Manchester United, er spenntur fyrir verkefninu sem bíður United annað kvöld en þeir mæta Manchester City í grannaslag á Old Trafford annað kvöld. United var niðurlægt af Everton á sunnudaginn og þarf heldur betur að bæta leik sinn ef ekki illa á að fara gegn grönnunum annað kvöld. Á svipuðum tíma í fyrra unnu United 3-2 sigur í leik liðanna en Pogba segir að nú sé staðan önnur. Liverpool andi ofan í hálsmálið á City og þeir þurfi sigur. „Ég myndi ekki segja að þetta væri sama staða og fyrir ári síðan því nú þurfa þeir einnig að vinna. Þeir þurfa sigur og það sama gildir um okkur,“ sagði Pogba í samtali við Sky Sports. „Við erum bæði í baráttunni um eitthvað. Þeir eru í baráttunni um titilinn og við í baráttunni um þriðja eða fjórða sætið svo þetta verður erfiður en mikilvægur leikur.“ „Rígurinn hefur alltaf verið. Þegar ég var í átján ára liðinu og við vorum að fara spila gegn City þá var rígurinn þarna. Þú spilar fyrir treyjuna og þú vilt bara vinna leikinn.“ „Þú getur séð að spennustigið er hátt og það er æðislegt að spila í þessum leikjum því þú færð reynsluna, ert með fólkið á bakvið þig og þau ýta á þig. Þetta er aðeins frábrugðið öðrum leikjum.“ Pogba segir að honum líki vel að spila þessa stórleiki og það er tilhlökkun í honum að komast aftur á völlinn eftir niðurlæginguna gegn Everton. „Ef ég tala fyrir sjálfan mig þá elska ég að spila gegn topp liðum með topp leikmönnum. Þetta eru leikir sem ég elska að spila og ég læri mikið af þessum leikjum. Ég vil spila vel gegn þessum liðum og vill vinna.“ „Auðvitað myndum við verða vonsviknir ef við myndum ekki enda í topp fjórum. Tvö tímabil í röð án bikars er ekki gott. Við erum Manchester United og spilum fyrir bikara. Við unnum ekkert á síðasta ári og ef við komumst ekki í topp fjögur sætin eru það mikil vonbrigði. Það er ekki gott fyrir félagið.“
Fótbolti Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Sjá meira