Ásthildur kemur inn í Pepsi Max mörk kvenna og byrjar í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. maí 2019 16:00 Ásthildur Helgadóttir lék lengi með sænska liðinu LdB FC Malmö. Mynd/LdB FC Malmö
Ásthildur Helgadóttir, nífaldur Íslandsmeistari í knattspyrnu kvenna, verður einn af sérfræðingum Pepsi Max marka kvenna á Stöð 2 Sport í sumar. Fyrsti þáttur Pepsi Max marka kvenna verður í beinni á Stöð 2 Sport 3 í kvöld í umsjón Helenu Ólafsdóttur en þar verður farið yfir fyrstu umferðina sem lýkur með leik Vals og Þór/KA í kvöld. Útsending Pepsi Max marka kvenna hefst klukkan 20.00 á Stöð 2 Sport 3 í kvöld eða strax á eftir útsendingu frá leik Vals og Þór/KA. Sérfræðingarnir í sumar verða Ásthildur Helgadóttir, Edda Garðarsdóttir, Gunnar Borgþórsson, Mist Rúnarsdóttir og Vanda Sigurgeirsdóttir en eins og undanfarin ár þá stýrir Helena Ólafsdóttir þættinum. Ásthildur Helgadóttir og Gunnar Borgþórsson verða með Helenu í þættinum í kvöld en Gunnar er fyrrum þjálfari Selfossliðsins í úrvalsdeild kvenna. Ásthildur Helgadóttir er ein besta knattspyrnukonan Íslands frá upphafi en hún skoraði á sínum tíma 23 mörk í 69 landsleikjum og 135 mörk í 152 leikjum í efstu deild. Ásthildur Helgadóttir varð fjórum sinnum Íslandsmeistari með Breiðabliki (1991, 1992, 1995, 1996) og fimm sinnum Íslandsmeistari með KR (1993, 1998, 1999, 2002, 2003). Hún vann auk þess bikarinn þrisvar sinnum. Ásthildur var þrisvar kjörinn leikmaður ársins í kvennadeildinni (1996, 2002 og 2003) og átti um tíma bæði leikja- og markamet íslenska kvennalandsliðsins.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Tapaði hlaupinu af því að forystubíllinn lét hana hlaupa kolranga leið Sport „Ég held ég sé komin með nóg af karlmönnum í bili“ Sport Efins um að ráða Carrick til frambúðar: „Maður er brenndur af fyrri tíð“ Enski boltinn Gakpo leit upp til Alberts Enski boltinn Vildi vinna fyrir dóttur sína en klúðraði því algjörlega Golf Glódís vonsvikin: „Þurfum að skoða þetta sem þjóð“ Fótbolti Segir Almari og félögum sýnd hræðileg vanvirðing Körfubolti „Niðurlægði mig fyrir framan allan heiminn“ Enski boltinn Í gervi nautabana fyrir eina sigurinn á Spáni Fótbolti Bannar leikmanni sínum að lyfta lóðum Enski boltinn Fleiri fréttir Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Flautaði leikinn af þegar FH-ingar komu ekki út í seinni hálfleik Tillaga um nýtt knattspyrnufélag í Breiðholti lögð fyrir ársþing KSÍ Skagamenn enduðu sigurgöngu Valsmanna í Lengjubikarnum Þórsarar semja við Ganverja til þriggja ára Verðlaunaðir fyrir þættina Lengsta undirbúningstímabil í heimi Sagður á leið í Víkina Tvö mörk í blálokin færðu Víkingum fyrsta titil ársins Bikar undir í gulri viðvörun Óvíst hvenær en Ægir Jarl mun ganga til liðs við Fram Úrslitaleikur Reykjavíkurmóts karla á miðvikudagskvöld Matthías Daði skoraði þrennu gegn Völsungi Þórdís gerði gömlu félögunum grikk og endurkoma hjá Þrótturum Valsarar skoruðu fjögur og Njarðvíkingar enn ósigraðir Stjarnan á toppinn með sigurmarki Samúels Kára Íslensk félög greiddu yfir fimm milljónir í sektir Arnar og Bjarki fengu gullmerki ÍA á sama tíma Jasmín á gamlar slóðir yngri bróður síns Viðar tekur slaginn með Selfossi Hallgrímur framlengir við KA „Engar áhyggjur af framtíð liðsins“ Kominn með nóg af flakkinu Víkingur og Breiðablik unnu bæði 1-0 sigra í kvöld Snýr aftur heim frá Val: „Nenni ekki að hafa þetta of væmið“ Þjálfari Stólanna segir upp störfum áður en tímabilið byrjar Sjá meira