Rae segir stemmninguna hafa verið góða í allan dag þar sem fjöldi fólks hafi heimsótt barinn sem er til húsa í kjallara á Laugavegi 4. Auk veiganna verður hægt að njóta höggmynda úr ís á staðnum.
Það eru norsk hjón sem eru bakhjarlar nýja Ísbarsins – þeim sjöunda sinnar tegundar sem þau opna. Fjórir staðanna eru í Noregi, einn í Kaupmannahöfn og einn var starfræktur í Karíbahafi en þurfti að loka eftir að fellibylur gekk þar yfir.

Drykkur og jakki innifalinn
Rae, sem er frá Kanada, segir að gestir muni þurfa að greiða 3.900 krónur til að sækja staðinn, en innifalið er íslenskur kokteill með íslenskum vodka, auk láns á kuldajakka og hönskum með sérstöku gripi fyrir kokteilglösin. Hún segir að staðurinn sé ætlaður bæði fyrir heimamenn og ferðamenn.Kirsten-Marie Holmen, annar norsku fjárfestanna, sagði í samtali við Morgunblaðið í september síðastliðinn að þau hjónin hafi varið miklum tíma og oft komið til Íslands í leit að hentugu húsnæði. „Þegar við sáum þessa byggingu í fyrrasumar hugsuðum við með okkur að rétta húsið væri fundið.“

Framkvæmdir staðið lengi
Síðustu ár hafa miklar framkvæmdir staðið á lóðinni sem Reykjavíkurborg keypti ásamt fasteignum fyrir 580 milljónir króna árið 2008. Kaup borgarinnar voru gerð í tengslum við yfirlýsingu Ólafs F. Magnússonar og sjálfstæðismanna þegar nýr meirihluti var myndaður í borgarstjórn með Ólaf í hlutverki borgarstjóra. Voru kaupin liður í að viðhalda 19. aldar götumynd Laugavegarins.Áformin breyttust þó þegar borgin seldi lóðina – Laugaveg 4 og 6, auk Skólavörðustígs 1a – árið 2014 og gaf síðar út leyfi fyrir glerbyggingu milli gömlu húsanna á staðnum. Glerbyggingin reis árið 2017, en eftir framkvæmdir verður búið að tengja saman Laugaveg 4 og Skólavörðustíg 1a.
