Húsið í Fossvogi rifið Birgir Olgeirsson skrifar 12. júní 2019 10:27 Unnið er að því að rífa húsið í Fossvogi sem brann í nótt. Vísir/Vilhelm
Eiginlegu slökkvistarfi er lokið vegna brunans í yfirgefnu húsi í Fossvogi í nótt. Unnið er að því að rífa húsið og standa slökkviliðsmenn vörð á meðan ef ske kynni að eldur kæmi aftur. Slökkviliðsmenn fengu útkall um svartan reyk sem lagði yfir Fossvog um klukkan tuttugu mínútur yfir þrjú í nótt. Slökkviliðsmenn af einni stöð voru sendir á vettvang en þegar þangað var komið var allt tiltækt slökkvilið kallað út því eldurinn var mun meiri en búist var við. Var mikið bál austan megin í húsinu og einnig í skemmu þar sem var að finna mikið af munum. Slökkvistarf var fremur strembið að sögn varðstjóra sem segir að erfitt hafi verið að komast að eldinum. Reykkafarar voru sendir inn í húsið til að ganga úr skugga um að enginn væri innandyra. Eftir skoðun reykkafara reyndist húsið mannlaust. Eldsupptök liggja ekki fyrir þegar þetta er ritað en greint var frá því í morgun að ekki væri hægt að útiloka íkveikju. Varðstjóri á vettvangi sagði húsið yfirgefið en eitthvað af fólki hefði hafst þar við og safnað saman munum.
Reykjavík Slökkvilið Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Fleiri fréttir Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Sjá meira