Bætir ekki við sig í HS Veitum Kristinn Ingi Jónsson skrifar 12. júní 2019 07:45 Um 15 prósenta hlutur í HS Veitum var settur í söluferli í síðasta mánuði.
Bæjarráð Reykjanesbæjar ákvað á fundi sínum í lok síðasta mánaðar að gera ekki tilboð í hlut í HSV eignarhaldsfélagi, næststærsta hluthafa HS Veitna með ríflega þriðjungshlut, en tæplega 42 prósenta hlutur í eignarhaldsfélaginu var settur í opið söluferli í byrjun maímánaðar. „Við fórum bara yfir það hvort þetta væri tækifæri sem við vildum skoða en það var ákveðið að lokum að gera það ekki,“ segir Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, sem er stærsti hluthafi HS Veitna með liðlega hfelmingshlut, í samtali við Markaðinn. Í fundargerð sem birt hefur verið á vef sveitarfélagsins kemur fram að Þórbergur Guðjónsson og Lilja Gylfadóttir, starfsmenn fyrirtækjaráðgafar Arion banka, hafi mætt á umræddan fund bæjarráðs og gert þar grein fyrir málinu. Eins og greint var frá í Markaðinum í liðnum mánuði eru Akur fjárfestingar og Tryggingamiðstöðin á meðal þeirra hluthafa í HSV eignarhaldsfélagi sem hyggjast selja sinn hlut í félaginu en auk þess munu lífeyrissjóðir selja hluta af sínum bréfum. Söluferlið hófst formlega í byrjun síðasta mánaðar undir umsjón fyrirtækjaráðgjafar Kviku banka. Í stuttri fjárfestakynningu vegna söluferlisins, sem ber heitið Project Heat og Markaðurinn hefur undir höndum, kemur meðal annars fram að áætlaður hagnaður HS Veitna fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta fyrir þetta ár sé um 2,9 milljarðar króna og að tekjur muni aukast um liðlega 500 milljónir og verða samtals rúmlega 7,4 milljarðar króna. Reykjanesbær er stærsti hluthafi HS Veitna með 50,1 prósents hlut en aðrir hluthafar eru HSV eignarhaldsfélag með 34,4 prósenta hlut, Hafnarfjarðarbær með 15,4 prósenta hlut og Sandgerðisbær sem fer með 0,1 prósents hlut.
Birtist í Fréttablaðinu Orkumál Reykjanesbær Mest lesið Hafna ásökunum um hönnunarstuld Viðskipti innlent Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Viðskipti innlent Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Viðskipti innlent Eldrauð Kauphöll Viðskipti innlent Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Viðskipti innlent Opna Lindex þar sem Útilíf var Viðskipti innlent Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Viðskipti innlent Taka skemmtiferðaskip í Vör Viðskipti innlent Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Fleiri fréttir Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Sjá meira