Vill verða ein af þeim bestu Ásta Eir Árnadóttir skrifar 29. júní 2019 21:00 Arna er mjög ánægð í náminu en hún stundar íþróttafræði við Háskólann í Reykjavík og telur hún að íþróttin og námið tvinnist vel saman. Mynd/Fréttablaðið
Fyrir 12 árum lenti Arna Sigríður Albertsdóttir í skíðaslysi sem breytti lífi hennar. Hún lét mótlætið ekki stöðva sig og stundar handahjólreiðar af krafti í dag. Vellíðan sem fylgir íþróttinni veitir henni innblástur í að ná lengra. Ísafjarðarbær á hug hennar allan, en þar ólst hún upp og stundaði íþróttir af krafti, þar á meðal skíði. Um áramótin 2006/2007 var Arna í æfingaferð í Geilo í Noregi þegar hún lenti í alvarlegu skíðaslysi og hlaut mænuskaða, þá 16 ára gömul. Sex árum eftir slysið flutti hún suður til Reykjavíkur og byrjaði þá að æfa handahjól. Handahjól er ein grein undir Alþjóðlega hjólasambandinu, líkt og fjallahjól og götuhjól. „Ég hef hingað til verið mikið ein að æfa hér á Íslandi, en það eru aðeins fleiri byrjaðir að stunda þetta núna,“ segir Arna. Það eru engar handahjólakeppnir hér á landi en þegar hún byrjaði var hún að taka þátt í styttri hjólakeppnum eða maraþonhlaupum. Hún var fyrsti Íslendingurinn sem keppti á handahjóli eða í hjólreiðum fyrir hreyfihamlaða „Ég fór á fyrsta mótið mitt árið 2014 og hef verið að keppa síðan. Markmið mitt núna er að komast á Ólympíuleika fatlaðra haustið 2020 í Tókýó.“Aftur á byrjunarreit Eftir slysið var Arna lengi í sjúkraþjálfun og meðfram henni var hún í mikilli styrktarþjálfun. „Þegar maður fær mænuskaða þá þarf að læra að setjast upp í rúminu, klæða sig, ýta sér í stólnum og færa sig á milli stóla. Allt þetta krefst mikils styrks í efri líkamanum.“ Í dag er hún hjá Fannari Karvel, styrktarþjálfara og íþróttafræðingi. „Hjá honum er ég að lyfta lóðum og gera alls konar styrktaræfingar fyrir efri líkamann, bara eins og allir íþróttamenn,“ útskýrir Arna. Það var ekki bara erfitt að finna sér nýja íþrótt eftir slysið heldur þurfti að byggja upp gríðarlegan styrk og þol. Þar sem íþróttin krefst mikils styrks í höndunum þá hefur tekið tíma fyrir Örnu að byggja hann upp en hún hefur æft vel og vandlega. „Þetta var mjög erfitt fyrst, en þá var ég mest að hjóla flatt, stutt og hægt, en er að reyna að komast nær þeim sem eru að hjóla með fótunum.Á ferð um fallega íslenska náttúruMynd/ Þórdís ReynisdóttirAukinn áhugi gleður Arna hefur verið dugleg að fara til útlanda að keppa á þessu ári. Hún stefnir á að taka eitt mót í viðbót áður en hún fer á Heimsmeistaramótið í hjólreiðum hreyfihamlaðra sem haldið verður í Hollandi í byrjun september. „Þetta mót er hápunktur ársins, og ég er mjög spennt.“ Nýlega skrifaði Arna undir samning hjá Icepharma. Hún er mjög spennt fyrir samstarfinu og finnur fyrir meiri áhuga á íþróttinni. „Þetta sport er rosalega dýrt, ég þarf til dæmis að vera á sérsmíðuðu hjóli og allar græjur í kringum þetta eru alls ekki ódýrar. Svo þar sem ég er ekki að keppa heima þá þarf ég alltaf að fara til útlanda að keppa og það getur kostað sitt. Ég er því mjög þakklát að fá aðstoð frá Icepharma til að ná sem lengst í þessu.“ Hún finnur fyrir meira áhuga á íþróttinni og telur mikilvægt að fjalla meira um fjölbreyttari íþróttir. „Það er greinilega meiri áhugi á fjölbreyttara sporti, maður finnur fyrir ákveðnari viðurkenningu. Ástæðan fyrir því að ég hef verið mikið í fjölmiðlum og farið í mörg viðtöl er að ég vil auglýsa þetta sport betur. Sérstaklega fyrir fólk með hreyfihömlun.“Vill miðla sinni þekkingu Hún er gríðarlega ánægð með að hafa tekið þá ákvörðun að prófa þessa íþrótt. „Þessi íþrótt gefur mér svo mikið, bæði hreyfingin og svo almenn líkamlega heilsa. Hreyfing er að sjálfsögðu mikilvæg fyrir alla, en sérstaklega fyrir fólk með mænuskaða því líkamshreyfingin verður almennt ekkert rosalega góð.“ Arna kláraði nýverið fyrsta árið sitt í Háskólanum í Reykjavík þar sem hún stundar nám í íþróttafræði. „Ég átti smá erfitt með að byrja aftur í námi eftir að ég slasaðist. En ég hef ótrúlega mikinn áhuga á þessu og námið er oft að hjálpa mér í íþróttinni. Það er líka gott fyrir mig að benda fólki sem er í endurhæfingu á íþróttir og hreyfingu, mér finnst það svolítið vanta á Íslandi.“ Erlendis er fólk sem hlýtur mænuskaða oft á sérstöku sjúkrahúsi þar sem því er gefið sérhæft prógramm og ýmsir möguleikar. „Mig langar að fólk viti að möguleikarnir eru til staðar. Íþróttafólk sem slasast á það oft til að hætta, en það er meira í boði,“ segir Arna. Arna segir að margir þættir spili inn í þegar kemur að jákvæðni og drifkrafti. „Mér finnst þetta aðallega ótrúlega gaman. Auðvitað koma dagar þar sem ég nenni kannski ekki á æfingu, en það gerist held ég hjá flestum íþróttamönnum stöku sinnum. Þessi tilfinning að komast út og upplifa hraða og adrenalín er eitthvað sem ég sæki í, og svo líður mér bara svo ótrúlega vel, það er aðalhvatningin.“
Birtist í Fréttablaðinu Hjólreiðar Ísafjarðarbær Mest lesið Var orðið að spurningu um líf og dauða Lífið Mömmustrákur skýtur uppvakningum ref fyrir rass Gagnrýni Aron Kristinn orðinn pabbi Lífið Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ Tónlist Fréttatía vikunnar: Andlát, fyllerí og fiskur Lífið Komu Balmain Hair Couture í Hagkaup fagnað með glæsilegum viðburði Lífið samstarf Norah Jones: Tíminn stóð í stað þar til ljóskastarinn vakti mann Gagnrýni „Þvílíkur fílingur bara“ Lífið Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Lífið Einbýli í Breiðholti úr smiðju Rutar Kára Lífið Fleiri fréttir Var orðið að spurningu um líf og dauða Fréttatía vikunnar: Andlát, fyllerí og fiskur Aron Kristinn orðinn pabbi Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Sumarlegt grillsalat að hætti Hildar Rutar Umboðsmaður Jenner lést af slysförum „Þvílíkur fílingur bara“ „Ég fæ alltaf gæsahúð af góðum texta“ Rósa og Hersir orðin foreldrar Einbýli í Breiðholti úr smiðju Rutar Kára „Fólk sleppur ekkert auðveldlega frá mér“ Staðfesta sambandsslitin Ætla að synda frá Elliðaey til Heimaeyjar Michael Madsen er látinn Kvenorkan tók yfir á Garðatorgi Björt og Fannar selja einbýlishús fyrir 90 milljónir Anna Guðný fann ástina í faðmi kraflyftingamanns Lykla-Pétur fauk á haf út Sigraðist á krabba og komst að óléttu samdægurs Miðar á Kaleo endurseldir á margföldu verði Hvar er Mollý Tik Tok skinka í dag? Landsliðsmaður gifti sig í Vík í Mýrdal Eitt glæsilegasta hrossabú landsins falt fyrir tæpan einn og hálfan milljarð Elta drauminn um hægara líf eftir fjögur ár á Íslandi Sólveig og Halldór gáfu dótturinni nafn Slær á létta strengi í þinginu og afhenti ráðherra „Gyllta tappann“ Of Monsters and Men gefa út nýtt lag Brady og Bloom sagðir sólgnir í Sweeney Fyrst skíði og nú golf Rétturinn sem fær konurnar niður á hnén Sjá meira