Þetta þýðir að Aron er þar með og umsvifalaust kominn í hinn eftirsótta 20 punda klúbb Nessvæðisins. Nokkuð sem flesta stangveiðimenn dreymir um en fáir hafa upplifað.
Góður gæd er lykilatriði
Aron tók laxinn á sunray-túpu hálftommu og í Höfðahyl. Hann mældist 100 sentímetrar. Leiðsögumaður Arons er einn þekktasti í því faginu sem um getur, helsti lærimeistari Bubba Morthens í laxveiðum, sjálfur Krauni eða Björgvin Krauni Viðarsson.
Þegar bassaleikarinn í DAD setti í stórlax
Þó það sé vissulega fáheyrt að maríulaxinn sé 20 pundari kann Bubbi að nefna dæmi í þá veruna.„Já, bassaleikarinn í Disneyland After Dark. Hann hafði aldrei snert á stöng. Aldrei. Og Völli fer með hann út á bát. Og hlustaðu nú vel og vandlega, maríulaxinn hans er 27 pund og 110 sentímetrar. Honum varð nú ekki meira um en svo að hann vildi ekki einu sinni fá mynd af sér með fiskinum. Hefði ekki skipt neinu þó hann hefði verið 4 pund. Það er til svona heppni,“ segir Bubbi og bætir við að sá lax hafi verið tekinn í Presthyl.

„Þá gerast ævintýrin. Í sjálfu sér stóð þetta lengi, viðureignin var í korter. Það var tekið fast á honum. Laxinn var mjög vel tekinn. Rosalega flott taka, yfirborðstaka. Þetta var fyrir allan peninginn. Geggjað.“
Voru að fara að ganga frá þegar laxinn tók
Ekki er úr vegi að ætla að hinn nýbakaði veiðimaður og handboltakappi verði illa gripinn veiðidellu í kjölfar slíkra ævintýra.„Það er auðvitað þannig að menn fá netta veiki þegar þeir lenda í svona nokkru,“ segir Krauni.
„Ekkert allir sem fá að upplifa þetta. Áin tekur ekki svona vel á móti öllum.“

„Við vorum búnir að reisa mjög stóran fisk þennan morgun á sama stað, ofar undir hylnum og ætluðum svo að reyna við hann aftur í restina. En, það voru ekki mörg köst eftir, hann lá neðarlega í hylnum þegar hann tók.“
Þetta var eiginlega opnunarhollið og það komu tíu laxar á land. Einn 208 sentímetrar og svo þessi 100 sentímetrar.
„Nokkrir í kringum 90 sentímetrana. Og svo einn smálax. Sem er mjög jákvætt. Skrítið að segja frá því en við vorum sérstaklega ánægðir með að fá smálax. Það hefur vantað síðustu tvö árin, alvöru kröftugar smálaxagöngur. Við vorum ánægðir með það.“
Dásamlegt þegar menn fá að upplifa annað eins og þetta
Krauni segist ekki vita hversu margir eru í 20 punda klúbbinn, hvar Aron er nú stoltur meðlimur.
Margir sem ég þekki sem hafa komið í tíu til fimmtán ár og eru ekki komnir í þennan klúbb.Ég sjálfur var búinn að veiða þarna í tíu ár áður en ég fór í hann. Þetta er ekki sjálfgefið. Dásamlegt að menn fái að upplifa það.“
Laxveiðin í sumar hefur farið varlega af stað en víða hafa menn verulegar áhyggjur af vatnsbúskapnum vegna langvarandi þurrka. Þannig má sjá að veiðitölur eru heldur lágar.
Urriðafoss trónir þar á toppi lista með 319 skráða laxa, þá kemur Blanda með 110 laxa. Brennan í Hvítá er svo í þriðja sæti með 93 laxa. Hærri tölur hafa sést en Laxá í Aðaldal er einungis með 20 skráða laxa samkvæmt því sem fært er til bókar hjá Landsambandi veiðifélaga.