Sérfræðingur stórfyrirtækja hafnar líkindum við Söknuð Garðar Örn Úlfarsson skrifar 8. júlí 2019 07:30 Jóhann Helgason kynnti í apríl 2018 áform um endurnýjaðan málarekstur vegna lagsins Söknuðar. Fréttablaðið/Eyþór „
Það eru engin slík líkindi milli laganna sem gefa til kynna að You Raise Me Up sé stæling á Söknuði,“ segir í greinargerð tónlistarprófessorsins Lawrence Ferrara sem lögð er fram af hálfu lögmanna Warner Music og Universal Music. Eins og kunnugt er hefur tónlistarmaðurinn Jóhann Helgason stefnt norska lagahöfundinum Rolf Løvland og tónlistarfyrirtækjunum Warner og Universal og fleiri fyrir alríkisdómstól í Los Angeles vegna meints stuldar á laginu Söknuði sem kom út árið 1977. Telur Jóhann að lagið You Raise Me Up sem Løvland sendi frá sér árið 2001 sé eftiröpun á Söknuði. Lögmenn Universal og Warner í málinu réðu Lawrence Ferrara til að gera fyrir sig samanburðargreiningu á lögunum tveimur. Greinargerð Ferrara hefur nú verið lögð fram við dómstólinn. Ferrara segir að á grundvelli greiningar sinnar finnist engin marktæk líkindi milli uppbyggingar laganna Söknuðar og You Raise Me Up. Það sama gildi um hljómsetningu, laglínu og takt laganna. Enn fremur segir Ferrara að þeir tónlistarlegu þættir sem komi fram í bæði You Raise Me Up og Söknuði séu til staðar í nokkrum eldri verkum. Hann nefnir til dæmis samstofna írsku þjóðlögin Danny Boy, The Young Man’s Dream og Londonderry Air.Einnig norska þjóðlagið Eg kan ikke gløyme og jólalagið When a Child Was Born sem kom út í nóvember 1976 sem sé í raun lagið Soleado frá árinu 1974. Ferrara segir að á grundvelli tónlistarfræðilegrar greiningar sinnar sé það sitt faglega mat að þótt Söknuður og You Raise Me Up deili nokkrum tónlistarlegum líkindum þá séu þau til staðar í vel þekktum eldri verkum. Þau líkindi hafi verið aðgengileg fyrir höfunda beggja laganna. Þessi líkindi megi rekja til þjóðlaga frá átjándu og nítjándu öld, sér í lagi til írskra þjóðlaga. Samkvæmt upplýsingum sem Ferrara gefur um sig sjálfan í greinargerðinni er hann tónlistarprófessor við New York háskóla. „Ég hef lagt til greiningar og álit í tengslum við höfundarréttarmál í tónlist í meira en tuttugu ár,“ segir hann. „Þetta kemur ekkert á óvart,“ segir Jóhann Helgason. „Þetta var búið að koma fram áður við rekstur málsins í Englandi og þá var búið að hrekja þetta vel og vandlega. Þá var hins vegar ekki til fjármagn til að halda áfram með málið.“ Lögmaður Jóhanns Helgasonar, Michael Machat, hefur nú frest fram yfir miðjan ágúst hið minnsta til að afla álits tónlistarsérfræðings fyrir Jóhanns hönd. Vegna þess hversu viðamikil greinargerð Lawrence Ferrara er hefur Machat óskað eftir framlengdum fresti fyrir starf síns sérfræðings. Þá hafa lögmenn áðurnefndra tónlistarfyrirtækja lagt fram kröfu um frávísun málsins. Hafni dómarinn henni er áætlað að réttarhöld með kviðdómi verði á dagskrá á næsta ári
Bandaríkin Birtist í Fréttablaðinu Dómsmál Jóhann Helgason gegn Universal Tónlist Tengdar fréttir Hafnar því að Söknuður byggi á Danny Boy Jóhann Helgason, tónlistarmaður, hafnar því að lag hans "Söknuður“ sé byggt á írska þjóðlaginu Danny boy eins og lögmenn fyrirtækja, sem Jóhann hefur stefnt vegna líkinda við lagið You Raise Me Up, segja. 3. maí 2019 22:03 Warner og Universal hafna fullyrðingum Jóhanns Helgasonar í LA Lögmenn lögmannsstofunnar Loeb & Loeb í Bandaríkjunum, sem gætir hagsmuna fjögurra fyrirtækja sem stefnt er í höfundarréttarmáli Jóhanns Helgasonar, hafa skilað sinni fyrstu greinargerð í málinu til alríkisdómstólsins í Los Angeles. 19. febrúar 2019 07:30 Jóhann Helgason segir ekkert óvænt í rökum mótaðilanna Að sögn Jóhanns Helgasonar kemur honum ekkert á óvart í rökum lögmanna tónlistarfyrirtækja sem eru meðal þeirra sem tónlistarmaðurinn hefur stefnt vegna meints stuldar á laginu Söknuði. 4. maí 2019 08:00 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Fleiri fréttir Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Sjá meira
Hafnar því að Söknuður byggi á Danny Boy Jóhann Helgason, tónlistarmaður, hafnar því að lag hans "Söknuður“ sé byggt á írska þjóðlaginu Danny boy eins og lögmenn fyrirtækja, sem Jóhann hefur stefnt vegna líkinda við lagið You Raise Me Up, segja. 3. maí 2019 22:03
Warner og Universal hafna fullyrðingum Jóhanns Helgasonar í LA Lögmenn lögmannsstofunnar Loeb & Loeb í Bandaríkjunum, sem gætir hagsmuna fjögurra fyrirtækja sem stefnt er í höfundarréttarmáli Jóhanns Helgasonar, hafa skilað sinni fyrstu greinargerð í málinu til alríkisdómstólsins í Los Angeles. 19. febrúar 2019 07:30
Jóhann Helgason segir ekkert óvænt í rökum mótaðilanna Að sögn Jóhanns Helgasonar kemur honum ekkert á óvart í rökum lögmanna tónlistarfyrirtækja sem eru meðal þeirra sem tónlistarmaðurinn hefur stefnt vegna meints stuldar á laginu Söknuði. 4. maí 2019 08:00