Skoðuðu sögu Þjóðhátíðar í þaula í nýrri heimildarmynd Steingerður Sonja Þórisdóttir skrifar 16. júlí 2019 10:00 Vinirnir Sighvatur Jónsson og Skapti Örn Ólafsson framleiða myndina Fólkið í Dalnum. Hörður Vilberg
Þeir Sighvatur Jónsson og Skapti Örn Ólafsson hafa unnið að gerð heimildarmyndar um Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum síðustu fimm ár. Myndin heitir Fólkið í Dalnum en þeir frumsýna hana síðar í dag fyrir borgarbúa. Skapti svaraði nokkrum spurningum um gerð myndarinnar. „Nú eru liðin 145 ár síðan hátíðin var haldin í fyrsta sinn. Við Sighvatur félagi minn úr Vestmannaeyjum byrjuðum að vinna að gerð myndarinnar fyrir fimm árum síðan. Myndin fjallar í þaula um þennan einstaka viðburð sem Þjóðhátíð er,“ segir Skapti. Myndin var forsýnd síðustu helgi í Vestmannaeyjum fyrir fullu húsi og eru þeir Skapti og Sighvatur einstaklega ánægðir með viðtökurnar sem hún fékk þar. Höfuðborgarbúar fá svo tækifæri til að berja myndina augum í Kringlubíói. „Þetta verður eina sýningin hérna í borginni í bili, og því einstakt tækifæri fyrir aðdáendur hátíðarinnar sem og aðra til að sjá myndina. Við erum með hátt í 200 viðmælendur í myndinni og tókum einnig þá ákvörðun að fylgja eftir tveimur fjölskyldum í gegnum undirbúning fyrir hátíðina.“ Skapti segir hátíðina byggða á ríkum og sterkum hefðum. „Margar hefðirnar hafa haldist í áratugi. Í myndinni komum við inn á þessar hefðir. Ein hefð og sú þekktasta er auðvitað þegar Eyjamenn reisa tjaldborg inni í Herjólfsdal, hvít hústjöld, og hafast þar við yfir verslunarmannahelgina. Þar koma fjölskyldur saman og njóta samvista og góðra stunda. Þjóðhátíð í Eyjum er alveg magnað fyrirbrigði og það hlýtur að vera einhver ástæða fyrir því að hún hefur gengið í öll þessi ár,“ segir Skapti.Heimildarmyndin er frumsýnd í dag í Kringlubíói. Mynd / Fólkið í DalnumHátíðin hefur verið haldin nær árlega frá árinu 1901 ef frá eru talin styrjaldarárin 1914 og 1915. „Hefðirnar hafa svo myndast hver af annarri. Það er bálköstur á Fjósakletti á föstudeginum, á laugardögum er alltaf heljarinnar flugeldasýning og svo endar hátíðin á sunnudeginum með brekkusöng og blysför, eitt blys fyrir hvert ár frá því fyrst var haldin Þjóðhátíð.“ Þjóðhátíð hefur svo með árum færst nær og nær því að vera tónlistarhátíð, en Skapti segir hana þó alltaf vera fyrst og fremst fjölskylduhátíð. „Við ræðum við fjölmarga tónlistarmenn í myndinni. Tónlistin er orðin mjög ríkur þáttur í Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Það hefur til að mynda verið gert Þjóðhátíðarlag síðan 1933, en það hafa komið út heil 77 Þjóðhátíðarlög frá því að fyrsta lagið kom út fyrir 86 árum. Síðan hefur líka margt breyst á þeim tíma sem við höfum unnið myndina.“ Skapti nefnir þar sérstaklega bekkjarbílana sem var siður að fluttu gestina í dalinn á árum áður. „Það hefur lagst niður af öryggisástæðum en sú ákvörðun var tekin á þeim tíma sem við vorum að vinna myndina. Við förum inn í nútíma form Þjóðhátíðar en lítum að sama skapi líka í baksýnisspegilinn. Í henni er mikið af gömlu myndefni ásamt því sem við skoðum sögu hátíðarinnar,“ segir Skapti. Hann segir að lokum það hafa staðið upp úr að ræða við þessa fjölmörgu áhugaverðu viðmælendur og að kynnast fjölskyldunum í dalnum sem þeir voru svo lánsamir að fá að fylgja eftir. Myndin verður sýnd klukkan 17.30 í Kringlubíói og vonast þeir Skapti, Sighvatur og allir sem komu að gerð myndarinnar, til að sjá sem flesta á eftir.
Birtist í Fréttablaðinu Bíó og sjónvarp Vestmannaeyjar Þjóðhátíð í Eyjum Mest lesið Aron Kristinn orðinn pabbi Lífið „Þvílíkur fílingur bara“ Lífið Umboðsmaður Jenner lést af slysförum Lífið Norah Jones: Tíminn stóð í stað þar til ljóskastarinn vakti mann Gagnrýni Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Lífið Komu Balmain Hair Couture í Hagkaup fagnað með glæsilegum viðburði Lífið samstarf „Fólk sleppur ekkert auðveldlega frá mér“ Lífið Einbýli í Breiðholti úr smiðju Rutar Kára Lífið „Ég fæ alltaf gæsahúð af góðum texta“ Lífið Bylgjulestin mætir á Írska daga á Akranesi Lífið samstarf Fleiri fréttir Aron Kristinn orðinn pabbi Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Sumarlegt grillsalat að hætti Hildar Rutar Umboðsmaður Jenner lést af slysförum „Þvílíkur fílingur bara“ „Ég fæ alltaf gæsahúð af góðum texta“ Rósa og Hersir orðin foreldrar Einbýli í Breiðholti úr smiðju Rutar Kára „Fólk sleppur ekkert auðveldlega frá mér“ Staðfesta sambandsslitin Ætla að synda frá Elliðaey til Heimaeyjar Michael Madsen er látinn Kvenorkan tók yfir á Garðatorgi Björt og Fannar selja einbýlishús fyrir 90 milljónir Anna Guðný fann ástina í faðmi kraflyftingamanns Lykla-Pétur fauk á haf út Sigraðist á krabba og komst að óléttu samdægurs Miðar á Kaleo endurseldir á margföldu verði Hvar er Mollý Tik Tok skinka í dag? Landsliðsmaður gifti sig í Vík í Mýrdal Eitt glæsilegasta hrossabú landsins falt fyrir tæpan einn og hálfan milljarð Elta drauminn um hægara líf eftir fjögur ár á Íslandi Sólveig og Halldór gáfu dótturinni nafn Slær á létta strengi í þinginu og afhenti ráðherra „Gyllta tappann“ Of Monsters and Men gefa út nýtt lag Brady og Bloom sagðir sólgnir í Sweeney Fyrst skíði og nú golf Rétturinn sem fær konurnar niður á hnén „Takk Hreyfill frá Vorsabæ“ Vala Grand og Brynjólfur flytja á Skagann Sjá meira