Óhætt er að fullyrða að Hólmgarður 34 sé sögufrægur. Húsið var lengi helsti verslunarkjarni Bústaðahverfis og upp úr miðri síðustu öld mátti þar finna mjólkurverslun, rakarastofu, efnalaug, bókabúð og verslun með nýlendurvörur.
Með innreið stærri verslunarkjarna og stórmarkaða fór þó að halla undan fæti hjá Hólmgarði og hefur hann verið í hálfgerri niðurníðslu um árabil. Húsið hefur verið vannýtt, ef frá er talið rými á jarðhæð hússins þar sem skátafélagið Garðbúar hefur haft aðstöðu. Þá hefur slæðingur af hústökufólki jafnframt búið sér stundum næturstað í Hólmgarði, við misjafna hrifningu nágranna.
Á vormánuðum var þessari þróun hins vegar snúið við. Eftir að hafa keypt út aðra eigendur að húsnæðinu hóf Ásgeir Örn viðamiklar endurbætur á húsnæðinu.

Lego-framkvæmdir
Í stað þess að rífa Hólmgarð var hannað gríðarlegt stálvirki sem sett var utan á húsnæðið - „sem grípur allt húsið niður í jörð. Við festum stálbita á steyptu veggina og gátum þannig byggt tvær hæðir ofan á húsið. Þá gátum við einnig nýtt steypta þakplötu yfir fyrstu hæðinni og fyrir vikið byggðum við í raun nýtt hús ofan á gamla húsið,“ útskýrir Ásgeir. Innan í stálvirkið voru svo settar timbureiningar sem smíðaðar voru í öðrum helmingi hússins, „þær voru í raun „Lego-aðar inn,“ eins og Ásgeir orðar það.Fyrir vikið er nú næstum risið þriggja hæða hús á tæplega hálfu ári og gera áætlanir ráð fyrir að framkvæmdum verði lokið eftir um tvo mánuði. Skátarnir eru nú þegar fluttir inn á jarðhæðina og segir Ásgeir að fyrirhugað sé að þeir fái nágranna áður en langt um líður.
Í húsinu er gert ráð fyrir 10 til 15 íbúðum, að jafnaði um 80 til 100 fermetrar að stærð. Aðspurður um hvað valdi þessu bili segir Ásgeir að „enn sé verið að leika sér með stærðirnar á íbúðunum á neðri hæðunum“ Þrátt fyrir það sé farið að spyrjast fyrir um íbúðirnar og þegar búið að panta alla jarðhæðina.

Brauðilm frekar en steikingarbrælu
Þar er til að mynda gert ráð fyrir að opna kaffihús, svokallað konditori-bakarí, en Ásgeir er ekki tilbúinn að gefa upp á þessari stundu hvaða rekstraraðili muni taka við rýminu. Ekkert annað kaffihús er í næsta nágrenni og því áætlar Ásgeir að þetta geti orðið mikil lyftistöng fyrir hverfið.„Við vorum ekkert sérstaklega hrifin af hugmyndum um að fá veitingastað í þetta pláss með allra þeirri steikingarbrælu sem slíkum rekstri fylgir. Við vildum miklu frekar fá kaffihús og bakarí sem bakar gott brauð, því fylgir miklu betri lykt,“ segir Ásgeir.
Ekki skemmi heldur fyrir að andspænis húsinu sé stór og gróðursæll garður. Þar megi sitja með veitingar á fallegum dögum á meðan börnin leika sér í leiktækjunum garðsins.

Þegar komin not fyrir geymslurnar
Á bak við Hólmgarð stendur röð lítilla húseininga sem einnig er búið að taka í gegn. Ásgeir segir að röðin hafi verið „gjörsamlega méluð niður“ og endurreist svo að útlit hennar sé í samræmi við hinn endurgerða Hólmgarð.Þar eru nú 10 geymslur sem fylgja íbúðunum í húsinu og segir Ásgeir að áhugasamir kaupendur sjái fyrir sér margvísleg not fyrir geymslurnar, til að mynda hafi einn í hyggju að nýta geymsluna sem vinnustofu.
Sem fyrr segir er áætlað að framkvæmdum verði lokið í haust og má ætla að líf verði komið í húsið fyrir árslok.
