Í greinargerð sem Sveinn hefur unnið segir meðal annars að áætlaðar brúttótekjur stofunnar séu um 500 miljónir króna á því tímabili sem myndin var til sýninga og stofan sem um hana var gerð var opin.
Meinið er að Sveinn hefur ekki séð svo mikið sem eina krónu af hagnaði af aðgangseyri. Þó hann sé rétthafi myndarinnar og gerði hana frá a til ö. Ólafur er skráður sem meðframleiðandi.
Deilurnar eru orðnar langar, ekkert miðar í samkomulagsátt en báðir aðilar eru með lögmannsstofur í málinu, Lex og Logos. Vísir hafði samband við Ólaf og vildi kalla fram hans hlið en Ólafur sagðist ekki vilja tjá sig neitt um málið að svo stöddu. Taldi reyndar að þar með væri ekki hægt að fjalla um það.
„Ekki er nóg að einn segi frá. Ég ætla ekkert að ræða þetta í fjölmiðlum strax,“ sagði Ólafur og að hann vissi ekkert hvenær það yrði í boði.
Ágæt búbót fyrir Ólaf bónda
Á Vísi má finna frétt frá árinu 2011 þar sem rætt er við Ólaf um gestastofuna sem sett var upp við bæinn Þorvaldseyri það ár, 11. apríl þegar gosið í Eyjafjallajökli var eins árs. Þar segir af miklum áhuga á gosstofunni sem svo var kölluð en þar er mynd Sveins sýnd í sérstökum bíósal:
„Við skynjum það oft að fólk verður fyrir miklum áhrifum við að sjá hana, sumir taka þetta mjög inn á sig og skilja ekki hvernig við komumst í gegnum þetta,“ sagði Ólafur en honum kom áhuginn ekki á óvart.
„Gosstofan er ágæt aukabúgrein. Þetta er töluverð búbót, en við leggjum líka mikið á okkur til að halda þessu gangandi. En þetta var augljóslega gott tækifæri og engin ástæða til að láta það fram hjá sér fara.
Auðvitað kostaði talsvert mikið að koma þessu í gang, en það hefur verið þess virði.“Gosstofunni hefur nú verið lokað, henni var lokað fyrir tveimur árum fljótlega eftir að deilur um hagnaðinn risu. Ólafur vill ekkert um þær deilur segja en Sveinn telur hins vegar ástæðulaust að láta þetta mál liggja í þagnargildi. Sagan sem hér verður tæpt á er löng.
Sveinn fékk hluta af hagnaði DVD-diskasölu
Sveinn segir að fyrir hafi legið að til að ná endum saman í því sem snýr að kostnaði hafi þurft 20 þúsund gesti. Ljóst sé að það markmið hafi náðst fljótlega eftir að stofan opnaði eða á tveimur mánuðum.„Ég kannaðist við gaurinn og hafði gert þátt um hann þegar hann var að koma sér fyrir sem kornbóndi, en Ólafur hefur komið ár sinni vel fyrir borð á styrkjum með tilraunaræktun og repjuframleiðslu,“ segir Sveinn.

Ólafur greiddi tilfallandi framleiðslukostnað að hluta og Sveinn segir að þeir hafi orðið ásáttir um að Sveinn myndi ekki senda reikninga vegna sýninga myndarinnar fyrr en kæmi í ljós hvernig gengi. Myndin var svo gefin út á DVD-diski sem seldur var á staðnum, þar og aðeins þar. Sveinn fékk fimmtíu prósent af söluhagnaði.
„Velta gestastofunnar var samkvæmt ársreikningi á einu og hálfu ári orðin svipuð og velta búsins alls, sem er eitt stærsta bú landsins.En, ég var ekkert að rugga neinum bátum og fann fljótlega að hann var ekki viljugur að borga einum né neinum neitt. Ég var að fá eitthvað fyrir diskasölu,“ segir Sveinn sem veit ekki hvort hann á heldur að hlæja eða gráta.
Budda bónda lokuð og læst
En, svo líður og bíður og ekkert bólar á því að Ólafur vilji semja við Svein um hluta af aðgangseyri á þessa mest sóttu heimildarmynd Íslandssögunnar.„Hún var sýnd á sjö tungumálum, ég lét þýða þetta, ég las sjálfur ensku, spænsku og íslensku. Þetta gengur svona glimrandi vel,“ segir Sveinn en þá hafi komið á daginn að budda bónda var kyrfilega lokuð og læst.

Veltan 500 milljónir á tímabilinu
Sveinn segir að um 500 þúsund manns hafi séð myndina áður en bóndinn lokaði sýningarsal sínum, en Sveinn hafði verið bónda innan handar við að koma honum upp þá varðandi hljóðkerfi og annað sem þarf til sýninga af þessu tagi.
Sveinn furðar sig á þeim þankagangi Ólafs, að láta sér til hugar koma að höfundur og framleiðandi myndarinnar fái ekkert í sinn hlut.
„Þetta er eiginlega meira prinsippmál en nokkuð annað. Sem varðar þá höfundarrétt.“Sveinn segir jafnframt að Ólafur hafi ætíð látið sem hann hafi átt myndina og sem minnst viljað um það tala hver gerði hana, en það lýsi töluverðri fákunnáttu um þá vinnu sem býr að baki.
Málið er í hnút og er staðan nú sú að sérstakur matsmaður hefur verið kallaður til af hálfu Sveins, sem nú vinnur í að gera úttekt á málinu öllu.